Dreifbýlislækningar í brennidepli á haustþingi lækna
6. október 2026
Dreifbýlislækningar voru yfirskrift árlegs haustþings Læknafélags Akureyrar sem haldið var 26. september.

Helga Þórsdóttir, Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Eyjólfur Þorkelsson, Margrét Ívarsdóttir, Kamilla Dóra Jónsdóttir, Bergþór Steinn Jónsson og Jón Pálmi Óskarsson
Þingið var vel sótt en þar komu aðallega saman læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og fleiri heilbrigðisstéttir bæði frá Sjúkrahúsinu á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), en einnig víða annarsstaðar að til að miðla þekkingu og ræða reynslu sína af störfum á Norðurlandi.
Slík þing gefa heilbrigðisstarfsfólki tækifæri til að læra hvert af öðru og efla tengsl þvert á starfsstöðvar. Það er ekki síst gagnlegt þegar heilbrigðisþjónusta er veitt á mörgum stöðum og aðstæður í starfi geta verið ólíkar.

Fulltrúar HSN tóku virkan þátt í þinginu. Stefán Júlíus Aðalsteinsson, sérnámslæknir í heimilislækningum hjá HSN á Húsavík og formaður Læknafélags Akureyrar, var fundarstjóri og einn skipuleggjandi þingsins. Helga Þórsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum hjá HSN á Sauðárkróki, hélt erindi um bráðavanda barna. Þá fjölluðu þeir Jón Pálmi Óskarsson, heimilis- og bráðalæknir hjá HSN á Dalvík og Akureyri og Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri sjúkraflutninga hjá HSN á Húsavík, um vaktina út á héraði, áskorunum og sigrum.
