Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Barnið og fjölskyldan í fyrirrúmi

27. október 2026

Hrefna Sæunn Einarsdóttir er fyrsti barna- og unglingageðlæknirinn hjá HSN í nýrri stöðu innan sálfélagslegrar þjónustu HSN.

Eitt af hennar markmiðum er að vinna með samstarfsfólki að þróun heildstæðari og sérhæfðari þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra í heimabyggð.  

Hrefna er Akureyringur, en bjó um tíma í Noregi sem barn á meðan faðir hennar var í sérnámi. Þegar kom að því að velja háskólanám fannst henni því eðlilegt að líta til Norðurlandanna. Hún fékk inngöngu í læknisfræði í Kaupmannahöfn og þar tók lífið sína stefnu, hún kynntist dönskum manni sínum, ílengdist í Danmörku og eignaðist tvö börn. Alls urðu árin þar tólf. 

Árið 2019 ákvað fjölskyldan að flytja til Akureyrar, þar sem Hrefna starfaði á Sjúkrahúsinu á Akureyri til ársins 2021. Fljótlega kom í ljós að fjölskyldunni leið vel fyrir norðan. Börnin aðlöguðust vel í leikskólanum og nálægðin við stórfjölskylduna skipti miklu.

„Það var ákveðið öryggi í því að vera komin heim og hafa fjölskylduna í nágrenninu. Það skiptir máli að hafa stuðning og bakland í kringum sig.“ 

Fann sig í barna- og unglingageðlækningum 

Hrefna prófaði að starfa á ýmsum sviðum læknisfræðinnar eftir námslok áður en hún loksins fann sig í barna- og unglingageðlækningum. Hún hafði kynnst þeim í Danmörku en þar var starfsumhverfið að mörgu leyti ólíkt því sem hún hafði áður séð. Áherslan var á að kynnast börnunum, fylgjast með þeim í leik og daglegum aðstæðum og skilja samskipti þeirra við foreldra og aðra í umhverfinu. 

„Mér fannst heillandi að horfa á barnið í samhengi við líf þess og aðstæður. Hvernig líður því heima og í skólanum? Hvernig gengur í samskiptum og hvaða stuðning þarf fjölskyldan?“ Viðfangsefnið var ekki eingöngu einkenni eða greining heldur barnið sjálft og það sem gæti hjálpað því að líða betur. Árið 2021 hóf Hrefna því sérnám í barna- og unglingageðlækningum á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Þar starfaði hún á mismunandi deildum, meðal annars í þrjú ár á barna- og unglingageðdeild Landsspítalans. Hún lauk sérnámi í sumar, útskrifaðist sem barna- og unglingageðlæknir og sneri síðan aftur norður. 

Barnið og fjölskyldan í miðju þjónustunnar 

Hjá HSN starfar Hrefna innan sálfélagslegrar þjónustu og er læknir í Geðheilsuteymi barna. Þar vinna ólíkar fagstéttir saman að því að meta vanda barna og finna viðeigandi leiðir til stuðnings og meðferðar. Hrefna leggur áherslu á að teymisvinna sé lykilatriði. Til að skilja líðan barns þurfi oft að skoða aðstæður þess frá mörgum sjónarhornum, í samstarfi við foreldra, skólaþjónustu, félagsþjónustu og aðra sem koma að málefnum þess. 

„Við þurfum að kynnast barninu og skoða heildarmyndina. Stundum þarf að styðja foreldra, stundum að vinna með skólanum og oft þarf að gera hvort tveggja. Það skiptir máli að við mætum barninu á réttum forsendum.“ Fjölskyldumiðuð nálgun er því mikilvægur hluti starfsins, þar sem stuðningur við barnið og stuðningur við fjölskylduna haldast gjarnan í hendur. 

Markmið að stytta bið eftir ADHD greiningum 

Staða Hrefnu er ný hjá HSN og hlutverkið er enn í mótun, en eitt þeirra verkefna sem eru í undirbúningi og er á vegum Heilbrigðisráðuneytisins snýr að aukinni aðkomu heilbrigðisþjónustu í heimabyggð að ADHD-greiningum barna. Verkefnið er tilraunaverkefni, með það að markmiði að stytta bið og færa þjónustuna nær börnum og fjölskyldum þeirra. Verkefnið er enn í undirbúningi og útfærslu. 

Hrefna bendir á að langur biðtími eftir þjónustu sé áskorun. Uppbygging öflugra teyma og gott samstarf milli þjónustuaðila skipti því miklu. Með ráðningu barna- og unglingageðlæknis skapist tækifæri til að efla þjónustuna og tengja læknisfræðilegt mat betur við aðra vinnu teymisins.

„Það sem skiptir mestu máli er að geta boðið börnum og fjölskyldum þeirra heildstæðari og sérhæfðari þjónustu í heimabyggð.“