Bangsaspítalinn á Akureyri
25. október 2023
Hinn sívinsæli Bangsaspítali verður opinn fyrir slasaða eða veika bangsa laugardaginn 28. október. Bangsar og eigendur þeirra eru velkomnir á heilsugæslustöðina á Akureyri þar sem læknanemar taka á móti þeim.
Hinn sívinsæli Bangspítali kemur aftur til Akureyrar laugardaginn 28. október!
Öllum börnum ásamt foreldrum eða forráðamönnum er boðið að koma með veika eða slasaða bangsa á 5. hæð á Heilsugæslunni á Akureyri milli klukkan 10 og 16.
Tilgangurinn með Bangsaspítalanum er tvíþættur, annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn og aðstandendur.
Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. Gott er að foreldrar eða forráðamenn sem koma með séu búnir að ræða við börnin fyrir heimsóknina um hvað amar að bangsanum, hvort hann sé til dæmis með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót. Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.
Það er Lýðheilsufélag læknanema sem stendur fyrir Bangsaspítalanum.
Bangsaspítalinn á Akureyri 2023 | Facebook