Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir hefur störf hjá HSN

5. apríl 2024

Betri þjónusta við eldra fólk hjá HSN.

Arna Oskarsdottir

Við tilkynnum með ánægju að Arna Rún Óskarsdóttir, öldrunarlæknir hefur verið ráðin til starfa hjá okkur á HSN. Arna Rún hefur mikla reynslu, hefur starfað um árabil sem öldrunarlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri og verið forstöðulæknir endurhæfingar- og öldrunarlækninga. Þá hefur hún verið formaður Færni- og heilsumatsnefndar heilbrigðisumdæmis Norðurlands til margra ára. Hún mun m.a. starfa með heimahjúkrun á Akureyri, koma að starfsemi hjúkrunardeilda HSN á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð og Húsavík og veita ráðgjöf til starfsfólks. Arna Rún mun hefja störf hjá HSN í sumar.

„Eldra fólki fjölgar á starfssvæði HSN eins og annarsstaðar. Starfsfólk hjúkrunardeilda og heimahjúkrunar HSN vinnur mikið og gott starf í þágu aldraðra sem búa heima þrátt fyrir heilsufarsvanda og skerta færni. Mitt hlutverk verður m.a. að vinna með starfsfólki heimahjúkrunar við að þróa áfram og bæta þjónustu við þennan hóp aldraðra með það markmiði að auka lífsgæði og getu þeirra til sjálfsbjargar.“

Við bjóðum Örnu Rún hjartanlega velkomna til okkar og fögnum því að geta veitt betri þjónustu á þessu sviði.