Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Flikk: Er barnið þitt með kvíða?

FLIKK (ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka) er rannsóknarverkefni sem Háskólinn í Reykjavík vinnur í samvinnu við Heilsugæsluna. Þetta er íslensk útgáfa af meðferð við kvíðavanda barna sem var þróuð af sérfræðingum við háskólana í Reading og Oxford. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á góðan árangur þessarar meðferðar.

Markmiðið er að kenna foreldrum aðferðir til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda og auka aðgengi að árangursríkri meðferð.

Fyrirkomulag

Ef þú átt barn sem er á aldrinum 5-12 ára sem þú telur að sé að glíma við kvíða getur þú sótt um aðstoð með því að skrá þig á skraning.flikk.is.

  • Við skráningu þarf að svara nokkrum spurningum til að meta hvort meðferðin henti. Athugið, að svo stöddu er meðferðin ekki í boði fyrir börn sem eru metin í áhættu eða með önnur einkenni sem meðferðin er ekki sérstaklega sniðin að ( t.d. einhverfurófsraskanir, sjálfsvígshugsanir og endurtekinn sjálfskaði).

  • Ef svörin benda til þess að barnið sé með hamlandi kvíða og þurfi aðstoð, mun sálfræðingur á heilsugæslustöð hringja og útskýra næstu skref.

Meðferðin

  • Þetta er netmeðferð þar sem foreldrar læra aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar til þess að hjálpa börnunum sínum að yfirstíga truflandi kvíða.

  • Meðferðin samanstendur af sjö meðferðarhlutum sem foreldrar vinna á sínum tíma á netinu.

  • Foreldrar fá vikuleg símtöl frá sálfræðingi á heilsugæslustöð meðan á meðferð stendur.

  • Eftirfylgd er mánuð eftir að meðferð lýkur.

Kostnaður: Meðferðin er gjaldfrjáls.

Nánari upplýsingar