Fara beint í efnið
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða

Hljóðbókasafn Íslands

Viljayfirlýsing ráðherra

4. september 2025

Þann 2. september 2025 var undirrituð viljayfirlýsing þar sem menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, Logi Einarsson lýsti yfir vija til að standa vörð um mikilvæga starfsemi Hljóðbókasafns Íslands.

Í viljayfirlýsingunni segir: Undirbúningur að sameiningu Landsbókasafn Íslands- Háskólabókasafns og Hljóðbókasafns Íslands er nú hafinn með formlegum hætti. Af því tilefni lýsir menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra yfir vilja til þess að standa vörð um þá mikilvægu þjónustu sem Hljóðbókasafnið veitir með vísan til lögbundinnar þjónustu safnsins og mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Markmið laga um safnið er að uppfylla réttindi fólks sem glímir við blindu, sjónskerðingu, lesblindu og aðra prentleturshömlun.

Með þessari yfirlýsingu er staðfestur vilji og ásetningur um að standa vörð um þessi réttindi og þjónustu, m.a. með eftirfarandi aðgerðum:

Samráð við hagaðila

Samráðshópur Hljóðbókasafnsins er skipaður fulltrúum frá Blindrafélaginu, Félagi lesblindra, Sjónstöðinni, Upplýsingu, félags bókasafns og upplýsingafræða og Félagi íslenskra sérkennara. Leitað verður eftir ráðgjöf hjá hópnum til að tryggja að sjónarmið notenda safnsins komi skýrt fram við vinnu við sameininguna. Mun starfshópur um sameiningu funda að lágmarki tvisvar með samráðshópnum á undirbúningstímabilinu.

Aðgengismál

Við aðlögun á þeim hluta húsnæðis Landsbókasafnsins sem nýttur verður undir þjónustu Hljóðbókasafnsins verður framkvæmd þarfagreining út frá notendahópi Hljóðbókasafnsins í samráði við hagaðila.

Þjónusta við notendur Hljóðbókasafnsins

Lögð verður áhersla á að þjónusta við notendur skerðist ekki við sameininguna heldur verði aukin, meðal annars með tilkomu fjölbreyttari safnkosts, styrkingu faglegs starfs og nálægð við háskólasamfélagið. Hljóðbókasafnið verður sérsafn innan Landsbókasafnsins og áhersla á að tryggja sérstöðu þess. Möguleiki á viðveru starfsfólks Hljóðbókasafnsins í húsnæði Blindrafélagsins við Hamrahlíð verður einnig kannaður í samstarfi við samráðshóp Hljóðbókasafnsins.

Starfshópur ráðuneytisins um sameiningu Hljóðbókasafn Íslands og Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafns er framkvæmdaraðili þeirra aðgerða sem hér eru taldar fram.

Auk ráðherra Loga Einarssonar, skrifa Örn Hrafnhelsson, landsbókavörður og Marín Guðrún Hrafnsdóttir, forstöðumaður Hljóðbókasafns undir viljayfirlýsinguna.

Hljóðbókasafn Íslands

Hafðu samband

Símaafgreiðsla: 545 4900

Hljóðver: 545 4910

Netfang: hbs@hbs.is

Opnun­ar­tími

Safnið er opið mánudaga til fimmtudag frá
10 til 16 og föstudaga 10 til 14:30

Símaafgreiðsla er opin alla virka daga 10 til 14

Heim­il­is­fang

Digranesvegur 5

200 Kópavogur