Við sjálfræðisaldur þarf að endurnýja aðgang
24. september 2026
Hljóðbókasafn Íslands hefur uppfært notendaskilamála og eftirleiðis þurfa lánþegar við 18 ára aldur að endurnýja umsókn sína kjósi þeir að halda áfram hjá safninu.

Við sjálfræðisaldur lokast aðgangurinn, enda hefst þá greiðsla árgjalds. Breytingin er liður í því að tryggja góða stjórnsýslu en við 18 ára aldur fellur einnig umboð foreldra og forráðamanna niður. Ekki er nauðsynlegt að fara í nýja greiningu, vottorð um eldri greiningu getur gilt.
Frekari upplýsingar má finna hér. Einnig er hægt að hafa samband við safnið á hbs@hbs.is eða í síma 545 4900
