Fara beint í efnið
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða

Hljóðbókasafn Íslands

Fyrir blinda, sjónskerta og fólk með lestrarhömlun

Útgáfa án aðgreiningar - Erindi af ráðstefnu

10. mars 2021

11. nóvember hélt NIPI (Nordic Inclusive Publishing Initiative) ráðstefnu sem sérstaklega var ætluð útgefendum og starfsfólki bókasafna, þar sem alþjóðlegir fyrirlesarar með sérþekkingu á fjölmörgum hliðum rafrænnar og aðgengilegrar útgáfu kynntu fyrir lykilþátttakendum úr norrænni útgáfu hvað þarf til til að ástunda útgáfu án aðgreiningar.

Merki Hljóðbókasafnsins

Þessi erindi eru nú öll aðgengileg þeim sem vilja kynna sér aðgengilega útgáfu. NIPI er samstarfsverkefni fimm norrænna systursafna sem öll bera ábyrgð á að gera bækur og annað lesefni aðgengilegt þeim sem ekki geta lesið prentað letur sér til gagns.

Af hverju ættu útgefendur að gera bækur sínar aðgengilegar? Með því ná þeir til fjölbreyttari lesendahóps og fjölga þar með viðskiptavinum sínum og gera vörur sínar nothæfar og áhugaverðar fyrir alla. Einnig kallar lagaumhverfi nánustu framtíðar á aðgerðir meðal útgefenda, ritstjóra, höfunda og dreifingaraðila til að leggja áherslu á útgáfu án aðgreiningar frá grunni.

Til að framleiða aðgengilegar bækur þarf bæði skilning á þörfum lesenda og hagnýta þekkingu á því hvernig hægt er að taka á þeim. Aðaláhersla Include! ráðstefnunnar var því á að fræða og upplýsa hagsmunaaðila um hvernig best sé að feta þessa slóð til aðgengilegri framtíðar fyrir alla. Til að hlusta og horfa á fyrirlestrana má smella á slóðina https://nipi.care/conference/conference-program/. 

Hljóðbókasafn Íslands

Hafðu samband

Símaafgreiðsla: 545 4900

Hljóðver: 545 4910

Netfang: hbs@hbs.is

Opnun­ar­tími

Safnið er opið mánudaga til fimmtudag frá
10 til 16 og föstudaga 10 til 14:30

Símaafgreiðsla er opin alla virka daga 10 til 14

Heim­il­is­fang

Digranesvegur 5

200 Kópavogur