Fara beint í efnið
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða

Hljóðbókasafn Íslands

Fyrir blinda, sjónskerta og fólk með lestrarhömlun

Til hamingju með Marakess-sáttmálann

2. mars 2022

Aðild Íslands að Marakess-sáttmálanum tekur formlega gildi í dag og því ástæða til að fagna.

Merki Hljóðbókasafnsins

Undirritun sáttmálans tryggir aðgengi að fjölbreyttara efni fyrir blinda, sjónskerta og fólk með lestrarhömlun og nú með þeim hætti að ekki skiptir máli hvar í heiminum bækur og annað prentefni er gefið út. Höfundarréttarvarið efni, sem gert er aðgengilegt, verður því óháð landamærum. Heimildir í sáttmálanum fjalla sérstaklega um óhagnaðardrifin félög og stofnanir á borð við Hljóðbókasafn Íslands sem gerir efni aðgengilegt fyrir þá sem á þurfa að halda og því skiptir undirritun Íslands miklu máli fyrir þann hóp sem nýtir sér mikilvæga þjónustu safnsins. 

Lengi hefur verið beðið eftir því að Ísland fullgilti sáttmálann og bættist þar með í hóp 85 aðildarríkja heimsins. Á síðasta ári voru gerðar nauðsynlegar breytingar á höfundalögum til undirbúnings og jafnframt var skerpt á hlutverki og réttindum Hljóðbókasafns Íslands en í 19. grein endurskoðaðra höfundalaga segir: „Viðurkennd eining getur gert eintak á aðgengilegu formi af verki eða öðru efni sem hún hefur lögmætan aðgang að, eða miðlað eintaki á aðgengilegu formi, gert það aðgengilegt, dreift því eða lánað einstaklingi með sjón- eða lestrarhömlun eða annarri viðurkenndri einingu með staðfestu á Evrópska efnahagssvæðinu, sé það ekki gert í hagnaðarskyni og sé eingöngu til afnota fyrir einstaklinga með sjón- eða lestrarhömlun.“

Sáttmálinn setur skýrar reglur um meðferð á höfundarrétti og einvörðungu er verið að opna á millisafnaaðgang til þeirra hópa sem á þurfa að halda og sem í tilviki Hljóðbókasafns Íslands hafa skilað inn vottorði um prentleturshömlun. Sáttmálinn birtir þó fyrst og síðast ríkan skilning á mannréttindum og nauðsyn þess að tryggja jafnt aðgengi að lesefni. Sáttmálinn bætir verulega aðgengi blindra og sjónskerta að les- og prentefni nú þegar höfundarréttarvarið aðgengilegt efni getur ferðast yfir landamæri.

Marín Guðrún Hrafnsdóttir
forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands

Hljóðbókasafn Íslands

Hafðu samband

Símaafgreiðsla: 545 4900

Hljóðver: 545 4910

Netfang: hbs@hbs.is

Opnun­ar­tími

Safnið er opið mánudaga til fimmtudag frá
10 til 16 og föstudaga 10 til 14:30

Símaafgreiðsla er opin alla virka daga 10 til 14

Heim­il­is­fang

Digranesvegur 5

200 Kópavogur