Styrkur til að vinna með skólabókasöfnum
3. júní 2026
Hljóðbókasafn Íslands hlaut kærkominn styrk úr Bókasafnasjóði og fór úthlutun fram í Höfuðstöðinni á sunnudaginn.

Verkefnið heitir Samstilltar hljóð- og rafbækur fyrir grunnskólanemendur og hefur það að markmiði að efla lestur grunnskólanemenda með því að auka aðgengi að samstilltum hljóð- og rafbókum í gegnum skólabókasöfnin. Um samstarf við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu er að ræða og munu þau leggja til bækurnar sem verða til boða á skólabókasöfnunum. Samstilltar bækur eru þannig að lesendur geta hlustað á upplestur og fylgst með textanum á sama tíma. Þess háttar lestur er fyrir þau sem eiga erfitt með einbeitingu yfirleitt árangursríkari.
Bókasafnasjóði bárust alls 23 umsóknir í ár og var heildarupphæð umsókna rúmar 54 milljónir króna. Alls var úthlutað 19 milljónum til níu verkefna og hlaut Hljóðbókasafnið hæsta styrkinn eða 3.7 milljónir króna.
