Starfsskýrsla 2025
27. maí 2026
Sameiningaráform einkenndu árið hjá Hljóðbókasafni Íslands

Starfsskýrsla Hljóðbókasafnsins fyrir árið 2025 er komin út. Árið einkenndist af sameiningaráformum þar sem frumathugun í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu á fýsileika þess að sameina þrjú söfn; Hljóðbókasafn Íslands, Kvikmyndasafn Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn; var metin jákvæð. Sameiningin verður að öllum líkindum tekin fyrir á Alþingi næsta haust.
Kjarnastarfsemi safnsins gekk að mestu vel og alls bættust 422 bókatitlar við safnið. Lesa má starfsskýrsluna í heild sinni hér.
