Samningur við Myndstef
29. september 2022
Þann 27. september undirrituðu Hljóðbókasafn Íslands og Myndstef tvo samninga vegna birtinga mynda og bókakápa í höfundarrétti á vef og í streymisveitu.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6kn9sS6Uqf0FfyiQ90CNDe/785a3fbaa7f8136e135600f759866bab/1_Myndstef_Hljodbokasafnid_samningur-7.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![1 Myndstef Hljodbokasafnid samningur-7](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6kn9sS6Uqf0FfyiQ90CNDe/785a3fbaa7f8136e135600f759866bab/1_Myndstef_Hljodbokasafnid_samningur-7.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Fjármunir sem innheimtast vegna þessara og annarra álíka samninga eru ekki bundnir ákveðnum höfundum og greiddir til viðkomandi aðila, heldur er um að ræða árlega heildargreiðslu sem rennur í sjóð Myndstefs. Úr þessum sjóði eru svo greiddir styrkir til starfandi myndhöfunda á hverju ári
Á myndinni eru Aðalheiður Dögg Finnsdóttir, framkvæmdastjóri Myndstefs, Marín Guðrún Hrafnsdóttir, forstöðumaður Hljóðbókasafnsins, Ragnar Th. Sigurðsson, stjórnarformaður Myndstefs og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir lögfræðilegur ráðgjafi.