Nýskipaður samráðshópur Hljóðbókasafnsins
3. október 2022
Í síðustu viku var haldinn fyrsti fundur hjá nýskipuðum samráðshópi Hljóðbókasafns Íslands, skipaður af ráðherra menningarmála Lilju Alfreðsdóttur til næstu fjögurra ára.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/79BcYwG3gZLQ1gtqqxX22I/fdc3b82974fedc4333dea073d6d927e8/Samra__sho_pur_til_2026.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![Samráðshópur til 2026](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/79BcYwG3gZLQ1gtqqxX22I/fdc3b82974fedc4333dea073d6d927e8/Samra__sho_pur_til_2026.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Hópurinn er forstöðumanni safnsins til ráðgjafar um stefnu safnsins og önnur málefni sem varða starfsemi þess, t.d. um starfsáætlanir, framboð og þjónustu. Samráðshópinn skipa:
Rósa María Hjörvar, formaður, tilnefnd af Blindrafélaginu, samtökum blindra og sjónskerta á Íslandi, Heiða Ingólfsdóttir varaformaður, tilnefnd af Félagi sérkennara á Íslandi, Snævar Ívarsson, tilnefndur af Félagi lesblindra á Íslandi, Andrea Dan Árnadóttir, tilnefnd af Upplýsingu, félagi bókasafns- og upplýsingafræða, Oddbergur Eiríksson, tilnefndur af Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.
Varamenn eru:
Kristinn Halldór Einarsson, tilnefndur af Blindrafélaginu, samtökum blindra og sjónskerta á Íslandi, Sædís Ósk Harðardóttir, tilnefnd af Félagi sérkennara á Íslandi, Ásta Rós Snævarsdóttir tilnefnd af Félagi lesblindra á Íslandi, Kristín Lilja Thorlacius Björnsson, tilnefnd af Upplýsingu, félagi bókasafns- og upplýsingafræða, Ásdís Þórðardóttir, tilnefnd af Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.