Nýr samningur við Rithöfundasambandið
22. september 2022
Hljóðbókasafn Íslands skrifaði í dag undir samning við Rithöfundasamband Íslands um bótagreiðslur til rithöfunda vegna ritverka sem safnið gerir aðgengileg fyrir lánþega sína.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6q4YzaTLPO9gHOS4lz55Ea/36c07ee10742ad06542827c949db924e/1_Vi__undirritun_samning_vi__RSI___2__22_sept_2022.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![1 Við undirritun samning við RSÍ, 2, 22 sept 2022](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6q4YzaTLPO9gHOS4lz55Ea/36c07ee10742ad06542827c949db924e/1_Vi__undirritun_samning_vi__RSI___2__22_sept_2022.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Nýi samningurinn skerpir á hlutverki og skyldum safnsins með vísan í endurskoðuð höfundalög frá því í apríl 2021 (https://www.althingi.is/lagas/nuna/1972073.html). Jafnframt kveður samningurinn á um að Rithöfundasambandið muni, eins og áður, annast umsjón og úthlutun bóta til allra rithöfunda og þýðenda og er aðild að sambandinu ekki nauðsynleg.