Nýr forstöðumaður tekinn við á Hljóðbókasafni
18. mars 2020
Marín Guðrún Hrafnsdóttir hefur tekið við embætti forstöðumanns Hljóðbókasafns Íslands.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1z6HskUJVxMVyFrrBfvLUh/5cf6b64a528864902b4272035dc357ec/1_713x0.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![Marín Guðrún Hrafnsdóttir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1z6HskUJVxMVyFrrBfvLUh/5cf6b64a528864902b4272035dc357ec/1_713x0.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Hún mætti formlega til starfa mánudaginn 16. mars og leysir af hólmi Einar Hrafnsson sem var skipaður forstöðumaður meðan ráðningarferli stóð yfir. Marín Guðrún lauk B.A. prófi í íslensku frá Háskóla Íslands (1993), M.A. prófi í enskum bókmenntum frá Háskólanum í Leeds (1995), diplómanámi í hagnýtri fjölmiðlun frá HÍ (1996) og M.A. gráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands (2017).
Hún hefur meðal annars starfað sem blaðamaður, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, verkefnastjóri hjá Lögmannafélagi Íslands og sem sjálfstætt starfandi fræðimaður.