Fara beint í efnið
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða

Hljóðbókasafn Íslands

Marakess-sáttmálinn 10 ára

30. september 2026

Í dag, 30. september, eru tíu ár liðin frá því að Marakess-sáttmálinn tók gildi á alþjóðavettvangi. Hann markaði mikilvæg tímamót í aðgengi blindra, sjónskertra og fólks með lestrarhömlun að bókum og öðru lesefni með því að auðvelda miðlun aðgengilegra eintaka yfir landamæri. Aðild Íslands að sáttmálanum tók gildi 9. mars 2022.

Sáttmálinn auðveldar miðlun aðgengilegra eintaka yfir landamæri og veitir þannig kost á fjölbreyttara lesefni á fleiri tungumálum. Marakess-sáttmálinn snýst fyrst og fremst um réttinn til að lesa. Bókasöfn á borð við Hljóðbókasafn Íslands gegna þar lykilhlutverki í miðlun. Samstarf við alþjóðlegu bókaveituna ABC (Accessible Books Consortium) gerir þetta kleift en þar er nú að finna yfir 1,25 milljónir aðgengilegra bóka á meira en 80 tungumálum. Þessar bækur geta viðurkenndar einingar á borð við Hljóðbókasafnið nálgast fyrir lánþega sína. Það er þó enn langt í land að bókaútgáfa heimsins sé aðgengileg lesendum með lestrarhamlanir og enn eru öflugir aðilar sem ekki deila efni sínu á veitu ABC.

Á tíu ára afmælinu er ástæða til að fagna sáttmálanum og huga að framhaldinu. Umhverfið hefur breyst mikið á áratug. Útgefendur, bókasöfn fyrir prentleturshamlaða og tæknifyrirtæki þurfa að vinna saman svo að þau sem glíma við hamlanir geti nálgast lesefni við hæfi og nýtt það eins og þeim þykir best. Áfram þarf að bjóða fjölbreytt miðlunarform og stuðning svo enginn verði skilinn eftir í stafrænni þróun. Tækifærin eru vissulega fyrir hendi.

Marín Guðrún Hrafnsdóttir, forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands

Hljóðbókasafn Íslands

Hafðu samband

Símaafgreiðsla: 545 4900

Hljóðver: 545 4910

Netfang: hbs@hbs.is

Opnun­ar­tími

Safnið er opið mánudaga til fimmtudag frá
10 til 16 og föstudaga 10 til 14:30

Símaafgreiðsla er opin alla virka daga 10 til 14

Heim­il­is­fang

Digranesvegur 5

200 Kópavogur