Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Hljóðbókasafn Íslands Forsíða
Hljóðbókasafn Íslands Forsíða

Hljóðbókasafn Íslands

Fyrir blinda, sjónskerta og fólk með lestrarhömlun

Hljóðbókasafnið og fjölþjóðlegt samstarf um hljóðbækur

8. maí 2025

Í apríl var Hljóðbókasafn Íslands gestgjafi fundaviku tveggja samstarfshópa: UX-hópsins og IT Forum, sem samanstanda af sérfræðingum frá norrænum og evrópskum stofnunum sem vinna að aðgengi að hljóðbókum fyrir notendur með prentleturshömlun. Fundirnir fóru fram í húsnæði Hljóðbókasafnsins og í fyrsta sinn var haldinn sameiginlegur fundur beggja hópanna, sem markaði nýtt skref í samstarfinu.

Fjallað var um lykilatriði í þróun aðgengis og þjónustu við lánþega með prentleturshömlun. Rætt var um auknar kröfur um afritunarvarnir og áhrif þeirra á lánþega og kynntar niðurstöður notendarannsóknar á upplifun fólks með lesblindu, ADHD og einhverfu af talgervlaröddum. Einnig voru til umræðu frá Noregi niðurstöður viðtala við foreldra barna með fötlun til að bæta þjónustu við þennan hóp. Kynntar voru skýrslur frá Sviss og Finnlandi um hvernig hægt er að bæta þjónustu við viðkvæma notendahópa með einföldum forritum og litlum spilurum sem gætu komið í stað geisladiska fyrir suma lánþega.

Rætt var um stefnu og leiðbeiningar varðandi notkun gervigreindar í framleiðslu, þar á meðal myndlýsingar og leiðir til að auka skilvirkni í framleiðslu og minnka kostnað án þess að það komi niður á lánþegum. Farið var yfir nýja innkaupaferla fyrir EPUB framleiðslu og stöðu námsbóka í raungreinum.Fulltrúar frá eftirfarandi stofnunum tóku þátt í fundunum:

  • Tibi (Noregur)

  • Dedicon (Holland)

  • MTM (Svíþjóð)

  • SBS (Sviss)

  • Nota (Danmörk)

  • Celia (Finnland)

  • Hljóðbókasafn Íslands

Hljóðbókasafn Íslands

Hafðu samband

Símaafgreiðsla: 545 4900

Hljóðver: 545 4910

Netfang: hbs@hbs.is

Opnun­ar­tími

Safnið er opið mánudaga til fimmtudag frá
10 til 16 og föstudaga 10 til 14:30

Símaafgreiðsla er opin alla virka daga 10 til 14

Heim­il­is­fang

Digranesvegur 5

200 Kópavogur