Hljóðbókasafnið hlaut styrk úr Skerfi
30. mars 2026
Hljóðbókasafn Íslands hlaut á dögunum kærkominn viðbótarstyrk úr Skerfi, sem er sjóður máltækniáætlunar ríkisins eða Almannaróms, að upphæð kr. 4.135.000.

Áfram verður því unnt að þróa og gera betri aðgengilegar raungreinabækur með því að gera talgervlum kleift að lesa flóknar formúlur og stærðfræðidæmi. Styrkurinn er þróunar – og framleiðslustyrkur og nefnist „Þróaðra MathCat fyrir íslensku“.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra úthlutaði 16 styrkjum til fyrirtækja og stofnana og var heildarupphæð 70 milljónir króna. Úthlutun fór að þessu sinni fram við hátíðlega athöfn í Iðnó sem jafnframt var opnunarhóf New Nordics AI sem er samvinnuvettvangur Norðurlandanna um gervigreind og máltækni. Það er margt framundan hjá Almannarómi og New Nordics AI og eitt fyrsta verkefnið er greining á umhverfi gervigreindar og máltækni á Íslandi. Hljóðbókasafnið hefur tekið þátt í máltækniáætlun ríkisins í nokkur ár og hlakkar til að vinna áfram að verkefninu.
Á myndinni eru fulltrúar þeirra fyrirtækja og stofnana sem hlutu styrki ásamt menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Loga Einarssyni og Lilju Dögg Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Almannaróms. Frá Hljóðbókasafni: Alfreð Halldórsson, Gunnar Grímsson og Marín Guðrún Hrafnsdóttir.

