Hlaupastyrkur í Reykjavíkurmaraþoni
15. ágúst 2024
Í ár verður í fyrsta skipti hægt að heita á Hljóðbókasafn Íslands í Reykjavíkurmaraþoninu.
Valdimar Sverrisson, ljósmyndari og uppistandari, á veg og vanda af skráningu Hljóðbókasafnsins. Hann mun hlaupa 10 kílómetra.
„Þetta er táknrænt þakklæti af minni hálfu en ég hef notað safnið mikið síðan ég missti sjónina fyrir níu árum,“ segir Valdimar.
Hægt er að heita á hann og fleiri hlaupara safninu til styrktar. Þeim fjármunum sem safnast verður varið til eflingar á bókakosti safnsins.
Við erum hlaupurunum þakklát fyrir að vekja athygli á starfsemi Hljóðbókasafns.
https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/775-hljodbokasafn-islands