Heimsókn á Landsbókasafn
14. september 2023
Starfsfólk Hljóðbókasafnsins heimsótti Landsbókasafnið í vikunni og fékk kynningu á fjölbreyttri starfsemi þess og húsakynnum safnsins.
Mikil breyting hefur átt sér stað í starfsemi bókasafna, ekki síst í varðveislu og forvörnum á stafrænu efni og nýjum leiðum til miðlunar. Það er alltaf fróðlegt og gagnlegt að sjá hvað önnur söfn eru að fást við og heyra af áskorunum sem blasa við þeim og síðast en ekki síst að bera saman bækur sínar.