Forstöðumenn norrænna hljóðbókasafna á Íslandi
26. maí 2026
Um miðan mánuðuðinn komu saman til fundar á Íslandi fimm norrænir kollegar og einn frá Sviss sem veita hljóðbókasöfnum eða hljóðbókadeildum forstöðu. Margt var rætt en miklar breytingar hafa átt sér bæði hvað varðar alla tækni og sjálfstæði safnanna. Í Danmörku, Noregi og Finnlandi er nú talað um aðgengilega bókasafnsþjónustu innan stærri heilda. Í tilviki Noregs og Danmerkur heyrir þjónustan undir Landsbókasöfnin en í Finnlandi hafa þrjú ólík söfn verið sameinuð.

Hljóðbókasafn Íslands á í miklu og góðu samstarfi við Norðulöndin og einn liður í því er virkt samstarf forstöðumanna. Sviss hefur um árabil tekið þátt í samstarfinu og þar og í Svíþjóð eru ekki fyrirhugaðar neinar stjórnsýslulegar breytingar. Hljóðbókasafn Íslands er í nokkurri óvissu en sameining við Landsbókasafn Íslands verður að öllum líkindum tekin fyrir á haustþingi Alþingis.
