Aðgengi frá upphafi
19. október 2026
Aðgengi á ekki að vera lagfæring sem kemur eftir á og nær aðeins til hluta þess efnis sem gefið er út. Það þarf að vera hluti af hönnun, þjónustu og útgáfu frá fyrsta degi.

Þessi hugsun var áberandi á tveimur nýlegum ráðstefnum um aðgengi sem starfsfólk Hljóðbókasafns Íslands sótti í haust. Þótt önnur ráðstefnan fjallaði fyrst og fremst um aðgengilega útgáfu og hin um stafrænt aðgengi var meginboðskapurinn sá sami: aðgengi þarf að vera innbyggt í ferlið frá upphafi en ekki bætt við þegar varan eða þjónustan er tilbúin.
Í lok september var fyrsta Accessible Publishing Conference haldin í London. Þar komu saman höfundar, útgefendur, starfsfólk tæknifyrirtækja og aðgengisbókasafna og síðast en ekki síst lesendur sem búa við sjónskerðingu eða lestrarhömlun.Ráðstefnan var haldin á tíu ára afmæli gildistöku Marrakesh-sáttmálans á alþjóðavettvangi, en hann markaði mikilvæg tímamót með því að auðvelda miðlun aðgengilegra eintaka yfir landamæri. Ísland varð aðili að sáttmálanum árið 2022.
Á ráðstefnunni var horft fram á veginn. Marrakesh-sáttmálinn hefur gert aðgengisbókasöfnum kleift að miðla efni betur, en næsta stóra skrefið er að bækur og rafbækur verði í auknum mæli aðgengilegar strax við útgáfu. Í nokkrum Evrópulöndum hafa útgefendur þegar náð langt í gerð aðgengilegra rafbóka, meðal annars með skýrri uppbyggingu, myndlýsingum og betri upplýsingum og lýsigögnum. Verkefnið er þá ekki aðeins að framleiða aðgengilegt efni heldur líka að tryggja að það sé sýnilegt, auðfundið og nýtanlegt þeim sem þurfa á því að halda.
Sama áhersla kom skýrt fram á ráðstefnu um stafrænt aðgengi sem haldin var í Hörpu 1. október á vegum Öryrkjabandalags Íslands í samstarfi við IAAP Nordic. Ný íslensk löggjöf gerir kröfur um aðgengi opinberra vefsvæða og smáforrita, en lög og staðlar leysa ekki verkefnið ein og sér. Innleiðingin skiptir öllu máli. Einn fyrirlesaranna orðaði þetta á eftirminnilegan hátt: Það gengur ekki að baka bollakökuna fyrst og ætla síðan að setja bláberin í. Sama gildir um aðgengi. Ef hugað er að því frá upphafi verður það eðlilegur hluti af lausninni.
Þetta snertir starf Hljóðbókasafns Íslands með beinum hætti. Safnið tryggir fólki með prentleturshömlun aðgang að bókum og öðru lesefni og þarf jafnframt að tryggja að eigin miðlun og stafrænar þjónustuleiðir séu aðgengilegar. Safnið er í ágætu samstarfi við þau útgáfufyritæki sem gefa út hljóðbækur en þróunin í útgáfu og tækni skapar líka tækifæri til þess að fleiri bækur verði aðgengilegar strax við útgáfu. Það þýðir þó ekki að hlutverk sérhæfðra aðgengisbókasafna hverfi. Þvert á móti verða þau áfram mikilvæg þegar almenn útgáfa eða markaðslausnir duga ekki. Þar gegnir Marrakesh-sáttmálinn áfram mikilvægu hlutverki sem öryggisnet og grundvöllur samstarfs milli landa.
Framundan eru líka nýjar áskoranir. Gervigreind getur til dæmis hjálpað við myndlýsingar og úrvinnslu flókinna bóka auk þess sem talgervlar eru orðnir mjög góðir, en hér verður að fara varlega og huga að höfunda- og sæmdarrétti. Framtíðin felst því ekki í því að velja milli staðla og nýrrar tækni, heldur að láta þetta vinna saman ef unnt er að tryggja öryggi efnisins.
Markmiðið er í grunninn einfalt: að fleiri geti nálgast sama efni, á sama tíma og aðrir, án þess að þurfa fyrst að bíða eftir sérlausn. Á meðan því markmiði er ekki náð er Hljóðbókasafn Íslands nauðsynlegt, mikilvægt og uppfyllir fyrir hönd íslenska ríkisins rétt fatlaðs fólks.
Marín Guðrún Hrafnsdóttir
forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands
