Rafræn skil gagna
Allar tegundir mála
Almenn innsending gagna í öllum málategundum er í gegnum vefgátt dómstóla.
Leiðbeiningar:
Rannsóknarmál
Almenn innsending gagna er í gegnum réttarvörslugáttina.
Um rafræn skil á gögnum
Skjöl og sýnileg sönnunargögn sem leggja skal fram vegna reksturs máls teljast afhent dómstól berist þau honum sannanlega rafrænt innan tilskilins frest. Skilyrði er að senda dómstól jafnframt strax í pósti tilskilinn fjölda eintaka skjalanna og annarra sýnilegra sönnunargagna.
Málsaðila er skylt að afhenda gagnaðila samtímis með sama hætti skjöl og sýnileg sönnunargögn sem þannig eru afhent dómstól.
Ef upp koma vandamál við notkun ætti að hafa samband við viðkomandi héraðsdóm. Þetta er samkvæmt:
2. meðalgrein 208. greinar laga númer 91 frá 1991 um meðferð einkamála.
3. meðalgrein bráðabirgðaákvæðis í lögum númer 88 frá 2008 um meðferð sakamála.