Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála Forsíða
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála Forsíða

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Viðbrögð og leiðrétting vegna fullyrðinga um GEV í frétt hjá RÚV

4. febrúar 2026

Viðbrögð og leiðrétting vegna fullyrðinga um GEV í frétt hjá RÚV

Fyrir hönd GEV vil ég nefna að leitt er að viðmælandi ykkar Guðlaugur Kristmundsson skuli upplifa, í birtu viðtali í dag, að hann mæti lokuðum dyrum í kerfinu og upplifi sinnuleysi. Fimm barnaverndarþjónustur á landinu sinna engu eftirliti - RÚV.is

Hlutverk GEV er að hafa eftirlit með gæðum og öryggi þjónustu, m.a. á sviði barnaverndar og þar á meðal þjónustu fósturforeldra.

Í ljósi þess er kemur fram í viðtalinu verðum við að fá að vísa því á bug að GEV viðhafi og hafi sýnt sinnuleysi eða vísað málum frá okkur þegar til okkar er leitað. Hjá GEV eru öll mál könnuð sem eru tilkynnt til okkar. Hann segir að GEV sé ekki að sinna sínu eftirlitshlutverki gagnvart barnaverndarþjónustum varðandi skyldu þeirra til að hafa eftirlit með fósturbörnum. Hjá GEV höfum við lagt okkur fram um að eiga gott og opið samtal við alla hagsmunaðila, þ.á.m. félag fósturforeldra og fundað með þeim reglulega. Jafnframt erum við að leggja áherslu á fyrirbyggjandi eftirlit og styðjum sveitarfélög í því að byggja upp sitt innra eftirlit. Þvert á það sem viðmælandi fullyrti þá er engum málum vísað frá hjá GEV, en mikilvægt er að senda formlega inn tilkynningar til okkar svo við getum kannað mál og brugðist við hratt og faglega.

Þau verkefni sem GEV hefur haft eða hefur nú til rannsóknar eða vinnslu er lúta að fósturforeldrum eru eftirfarandi:

Í gangi er nú stórt frumkvæðisathugunarmál á barnaverndarþjónustu sveitarfélags, sem snýr sérstaklega að vinnslu fóstur- og vistunarmála sveitarfélagsins. Það er eitt ár síðan það verkefni hófst og er umfangsmikið og er skýrslu að vænta fljótlega.

Þess utan hefur hjá GEV verið stofnað nýlega til frumkvæðiseftirlits í tveimur málum er varða fósturforeldra á grundvelli ábendinga sem stofnuninni hefur borist.

Áður hefur GEV lokið við vinnslu og rannsókn er snúa að tveimur fósturforeldrum til viðbótar.

Eitt dæmi er um að GEV hafi afturkallað rekstrarleyfi fósturforeldris í kjölfar ábendingar og innsendra gagna sem bárust stofnuninni.

Við hjá GEV viljum ítreka og benda á að fólk má hafa samband við okkur hafi það áhyggjur af þjónustu við börn á fósturheimili eða eftirliti sveitarfélaga með fósturforeldrum. Þetta eru börn í gríðarlega viðkvæmri stöðu og við leggjum okkur fram við að bregðast hratt við öllum ábendingum og kvörtunum sem til okkar berast. Það er því mjög mikilvægt að einstaklingar og samtök sendi til okkar ábendingar svo GEV geti hafið könnun í málum.

Varðandi umfjöllun Kveiks á fósturheimilinu Bakkakoti, í gær, þá bendir GEV á að eftirlitsheimildir stofnunarinnar ná ekki svo langt aftur í tímann, þ.e. til heimila sem hefur verið lokað. Eftirlit GEV snýr að þjónustu fósturforeldar í samtímanum, eða allt að ári eftir að barn sem hefur notið þjónustu nær 18 ára aldri.

f.h. Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála,

Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100