Fara beint í efnið

Laust spennandi og krefjandi starf lögfræðings hjá GEV

7. október 2022

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) auglýsir starf lögfræðings hjá stofnununni. Um er að ræða krefjandi og spennandi starf í lögfræðiteymi stofnunarinnar.

Horft yfir Kóp og RVK - GEV

Stofnunin hefur eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er m.a. á grundvelli barnaverndarlaga, laga um Barna- og fjölskyldustofu, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, laga um málefni aldraðra, laga um Ráðgjafar- og greiningarstöð, laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Markmið með starfsemi GEV er að sú þjónusta sem lýtur eftirliti stofnunarinnar sé traust, örugg og í samræmi við ákvæði laga, reglugerða, reglna, samninga og leiðbeininga. Á næstu misserum eru fjölbreytt og mikilvæg verkefni framundan hjá GEV við þróun gæðaviðmiða í velferðarþjónustu á Íslandi. Gæðaviðmiðin eru hornsteinninn fyrir eftirlit með þjónustunni og þeim kröfum sem eru settar fram vegna rekstrarleyfa. Helstu verkefni hjá GEV eru auk þessa birting á lykiltölum yfir starfseminna, þróun ferla við leyfisveitingar, afgreiðsla leyfisumsókna, frumkvæðiseftirlit með gæðum þjónustu, stærri eftirlitsverkefni, afgreiðsla kvartana og ábendinga vegna yfir þjónusta og vegna alvarlegar atvika. Í starfinu felast samskipti við fjölmarga hagsmunaaðila.

Hjá GEV starfar metnaðarfullur og lífsglaður hópur sérfræðinga sem hefur ástríðu fyrir málaflokknum. Leitað er að metnaðarfullum, jákvæðum og öguðum einstaklingi sem er tilbúinn til að starfs í lögfræðiteymi stofnunarinnar þar sem reynir á fagmennsku, frumkvæði og samstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnsla verkefna í lögfræðiteymi stofnunarinnar.

  • Könnun og úrvinnslu kvartana.

  • Þátttaka í rannsókn og úrvinnslu á alvarlegum atvikum.

  • Þátttaka í umsögnum um lagabreytingar og útfærslu reglugerða.

  • Lögfræðilega ráðgjöf í öðrum teymum stofnunarinnar.

  • Samskipti við þjónustuþega, opinberar stofnanir og samstarfsaðila.

  • Samvinna og þátttaka í verkefnum þvert á teymi stofnunarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meistarapróf í lögfræði er skilyrði.

  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði.

  • Þekking á helstu málaflokkum og lögum sem lúta eftirliti stofnunarinnar er skilyrði.

  • Þekking og reynsla á verkefnastjórnun er kostur.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lipurð í samvinnu.

  • Fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2022. Laun samkvæmt kjarasamningi sem fjármálaráðherra og viðeigandi stéttarfélag hafa gert. Um er að ræða fastráðningu með 6 mánaða reynslutíma. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, en starfið veitist frá 1. desember 2022.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftlitsstofnunar velferðarmála, herdis.gunnarsdottir@gev.is.

Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá með upplýsingum um menntun og fyrri störf. Einnig skal fylgja kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali, frammistöðu í mögulegum verkefnum sem þarf að leysa og umsagna sem aflað er. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Sækja um starf hér

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100