Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála Forsíða
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála Forsíða

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Athugun GEV á eftirliti barnaverndarþjónusta vegna barna í fóstri er hafin

13. mars 2026

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur að beiðni Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins stofnað til frumkvæðisathugunar á eftirliti barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri.

Í samræmi við vilja ríkisstjórnarinnar um að skoða hvernig eftirliti með fósturbörnum er háttað á Íslandi í dag hefur GEV hafið athugun meðal allra barnaverndarþjónusta á Íslandi. Lögð er áhersla á að athugunin nái til allra barna og ungmenna sem eru í fóstri í dag. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur óskað eftir að niðurstöður liggi fyrir um þremur mánuðum eftir upphaf athugunar.

Markmið frumkvæðisathugunarinnar er að kanna hvort barnaverndarþjónustur landsins hafi uppfyllt lögbundnar eftirlitsskyldur sínar gagnvart börnum og ungmennum í fóstri. Athugunin byggir einna helst á 2. mgr. 89. gr. b. barnaverndarlaga, þar sem barnaverndarþjónustu er skylt að heimsækja með reglubundnum hætti börn sem vistuð eru á vegum þjónustunnar á heimilum og stofnunum. Barnaverndarþjónusta skal heimsækja fósturheimili eins oft og ástæða þykir til, þó eigi sjaldnar en tvisvar sinnum fyrsta árið sem ráðstöfunin varir og einu sinni á ári eftir það.

Gagnaöflun athugunarinnar er þegar hafin og bauð GEV yfirmönnum barnaverndarþjónusta og félagsmálastjórum landsins til kynningarfundar þann 5. mars síðast liðinn. Framkvæmd athugunarinnar er þríþætt:

  • GEV hefur sent öllum barnaverndarþjónustum skjal til útfyllingar sem varðar öll virk fósturmál og eftirlitsheimsóknir vegna þeirra. Einnig var óskað eftir afriti af skráningum allra eftirlitsheimsókna vegna sömu barna og ungmenna auk afrits af verklagi vegna eftirlitsheimsókna.

  • GEV mun hafa samband við úrtak barna og ungmenna sem eru eða hafa verið í fóstri í þeim tilgangi að kanna upplifun og reynslu þeirra af dvöl á fósturheimili og hvernig eftirliti var háttað.

  • GEV mun kanna hvort fósturforeldrar, sem tilteknir eru í skráningarskjölum barnaverndarþjónusta, hafi gilt leyfi frá GEV til að taka barn í fóstur.

Að gagnagreiningu og skýrslugerð lokinni mun eftirlitsskýrsla verða birt á vefsíðu GEV. Áætlað er að skýrslan verði birt í júní 2026.

GEV bindur vonir til þess að niðurstöður frumkvæðisathugunarinnar muni nýtast barnaverndarþjónustum til að varpa ljósi á hvar úrbóta er þörf í þeim tilgangi að efla enn frekar gæði og öryggi þjónustu við börn og ungmenni í fóstri.

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100