Athugun á málavinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar er lokið
27. mars 2026
GEV hefur lokið við frumkvæðisathugun á málavinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vistun barna utan heimilis.

GEV hóf frumkvæðisathugun í febrúar 2025 á vinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar í þeim málum þar sem börn hafa verið vistuð utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga, ýmist í fóstur eða vistun á grundvelli 84. gr. barnaverndarlaga. Tilefnið var fjöldi og innihald þeirra ábendinga og kvartana sem borist höfðu stofnuninni vegna þessa, samtals sjö erindi.
Athugunin afmarkaðist við vinnslu mála á tímabilinu 1. janúar 2024 til 18. febrúar 2025. Gagnaöflunin fól í sér gagna- og upplýsingabeiðnir til barnaverndarþjónustunnar, viðtöl við starfsfólk og stjórnendur og samtöl við úrtak fósturforeldra. Af 41 máli sem voru til vinnslu á umræddu tímabili völdu eftirlitsaðilar 23 mál til að kanna nánar.
Niðurstaða GEV er að töluverður og alvarlegur misbrestur hafi orðið hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vinnslu mála sem voru til skoðunar, m.a. varðandi eftirfarandi:
Töluverður misbrestur var á skráningu gagna og varðveislu upplýsinga.
Skortur var á að í gildi væru fóstur- eða vistunarsamningar allan vistunartímann.
Ekki var gengið úr skugga um að vistunaraðilar væru með tilskilið leyfi frá GEV.
Grundvöllur vistunar var ekki tryggður á fullnægjandi hátt í öllum tilfellum, þ.e. hvort vistunin væri með samþykki foreldra eða ekki.
Ekki var gætt á fullnægjandi hátt að réttindum barna við málsmeðferð, m.a. varðandi skipun talsmanna og aðilastöðu barna 15 ára og eldri.
Ekki var gætt nægilega að réttarstöðu hins foreldrisins þegar ráðstöfun beindist að öðru foreldrinu.
Misbrestur var á að í gildi væri áætlun um trygga umsjá barns.
Skyldum varðandi umgengni við börn í fóstri og vistun var ekki fylgt að fullu.
Eftirliti og stuðningi við börn og fósturforeldra var ekki sinnt á fullnægjandi hátt.
Ljóst er að verulegir annmarkar hafi verið á málavinnslu þeirra mála sem athugunin náði til og að töluverður misbrestur hafi verið á því að kröfum í lögum og reglugerðum hafi verið fylgt. Afar mikilvægt er að barnaverndarþjónustan leggi áherslu á að efla innra eftirlit sitt í þeim tilgangi að stuðla betur að gæðum og öryggi þjónustunnar.
Í eftirlitsskýrslunni eru sett fram fjöldi tilmæla um úrbætur sem barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar ber að fara eftir. Hefur GEV óskað eftir úrbótaáætlun frá barnaverndarþjónustunni og skal úrbótum vera lokið 1. janúar 2027.
Skýrsluna má nálgast hér:
