Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála Forsíða
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála Forsíða

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Ábendingar frá hverjum sem er

GEV tekur við ábendingum um þjónustu sem heyrir undir eftirliti stofnunarinnar og er ekki í samræmi við gæðaviðmið eða ákvæði laga, reglugerða, reglna, samninga og leiðbeininga. Fjallað er um ábendingar í 13. gr. laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

 Ábendingum er hægt að koma á framfæri á Mínum síðum á vefsíðu GEV. GEV gætir leyndar um persónuupplýsingar þeirra sem beina ábendingu til stofnunarinnar nema viðkomandi veiti afdráttarlaust samþykki sitt fyrir öðru.

Ábendingar eru mikilvægur þáttur í eftirliti GEV og geta orðið til þess að stofnunin hefji frumkvæðiseftirlit. Athugið að þau sem senda inn ábendingu teljast ekki aðilar máls og hafa því ekki tilkall til að fá upplýsingar um framvindu máls og hvort ábendingin verði til þess að GEV hefji frumkvæðiseftirlit.

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100