Vefstefna dómstóla og dómstólasýslu
Gildi
Vefir dómstóla og dómstólasýslu byggja á gildum um sjálfstæði dómstóla, gæði þjónustu, skilvirkni og trúverðugleika.
Markmið vefjanna er að:
Gefa út dóma í samræmi við lögbundið hlutverk dómstóla, sbr. 20. gr. laga nr. 50/2016.
Birta dagskrá dómstóla með það að markmiði að styðja við meginregluna um opinbera málsmeðferð.
Kynna og vekja athygli á hlutverki dómstóla í samfélaginu.
Veita leiðbeiningar og miðla áreiðanlegum og greinargóðum upplýsingum um starfsemi dómstóla til málflytjenda og almennings með aðgengilegum, skýrum og skilvirkum hætti.
Bæta aðgengi að dómstólum og þjónustu við málflytjendur og almenning m.a. með rafrænum samskiptaleiðum og aukinni upplýsingagjöf.
Uppbygging og efni
Vefir dómstóla skiptast í sameiginlegan vef fyrir alla dómstóla og dómstólasýslu (domstolar.is), vef Hæstaréttar (haestirettur.is), vef Landsréttar (landsrettur.is), vef héraðsdómstóla (heradsdomstolar.is), sem er lendingarsíða fyrir hvern og einn héraðsdómstól, Endurupptökudóms (endurupptokudomur.is) og vef dómstólasýslunnar (domstolasyslan.is).
Áhersla er lögð á að:
Að leit í dómasafni sé notendavæn, skilvirk og áreiðanleg.
Efni á vefjum taki mið af hlutverki og eðli starfsemi dómstóla á hverju dómstigi og dómstólasýslunnar.
Efni taki mið af ólíkum þörfum notenda vefja dómstóla og dómstólasýslu. Notendur eru málflytjendur, aðilar, vitni, fjölmiðlar, stofnanir og allur almenningur.
Efni sem er miðlað á vefjunum sé vandað og þjóni markmiðum vefstefnunnar.
Efni á vefjunum sé á vandaðri íslensku og að efni sem sett er á vefinn á ensku eða öðru tungumáli sé á vönduðu máli.
Þróun
Vefirnir eru notendamiðaðir og þróaðir í samræmi við þarfir notenda og áherslur dómstóla.
Ábyrgð
Stefnuhópur: Vefstefnan er unnin af stefnuhópi vefs dómstóla og dómstólasýslunnar. Þar eiga sæti fulltrúar allra dómstiga og dómstólasýslu. Stefnuhópur tekur stefnumótandi ákvarðanir um þróun á vefjum dómstóla og dómstólasýslu.
Vefstjórar: Vefstjórar bera ábyrgð á efni á vefjum og á því að vefirnir samræmist vefstefnu dómstóla. Dómstólasýslan tilnefnir vefstjóra og skilgreinir nánar hlutverk þeirra. Vefstjórar fyrir vefi Hæstaréttar, Landsréttar og héraðsdómstóla skulu tilnefndir að tillögu hvers dómstigs. Dómstólasýslan tilnefnir vefstjóra fyrir vef dómstólasýslunnar, Endurupptökudóm og fyrir sameiginlegan vef dómstóla. Vefstjóri dómstólasýslunnar hefur yfirumsjón með efni á öllum vefjunum.
Þannig kynnt í stjórn í júní 2026 og samþykkt af framkvæmdastjóra.