Stefna dómstólasýslunnar um notkun gervigreindar hjá dómstólum og dómstólasýslu
Inngangur
Með hliðsjón af hlutverki og sjálfstæði dómsvaldsins er mikilvægt að móta stefnu um notkun gervigreindar í dómskerfinu.
Gervigreind spannar vítt svið, allt frá einfaldri tækni sem fyrst og fremst greinir, flokkar og vinnur úr gögnum til flókinnar tækni sem byggð er á stórum mállíkönum sem geta líkt eftir skapandi mannshuga og skáldað nýtt efni (spunagreind). Þótt efni sem spunagreind býr til líkist því að vera sprottið úr mannlegri tjáningu er sú ekki raunin. Um er að ræða upplýsingakerfi sem hafa ekki sjálfstæða dómgreind. Slík kerfi búa heldur ekki yfir tilfinningum, löngunum eða skoðunum og taka ekki sjálfstæða afstöðu til nokkurra álitaefna.
Notkun gervigreindar felur í sér bæði tækifæri og áhættur sem eru mismiklar eftir því um hvers konar gervigreind er að ræða. Ætla má að með notkun ýmissa gervigreindarlausna sé unnt að auka skilvirkni og bæta þjónustu dómstóla og dómstólasýslunnar. Í því sambandi er meðal annars horft til einfaldra gervigreindarlausna sem færa talað mál í texta (talgreini) og nýta má til uppritunar á skýrslutökum, þýðingartóla og fleira. Tryggja þarf að þróun og notkun gervigreindarlausna samræmist lögum og reglum, einkum um friðhelgi einkalífs og persónuvernd og öryggi upplýsinga. Þá þarf að hafa í huga að gögn sem hlaðið er niður frá gervigreindarlausnum, eða öðrum ytri aðilum, kunna að bera með sér vírusa. Spunagreind felur að auki í sér aðrar og stærri áhættur sem tengjast réttmæti og rekjanleika afurða sem gervigreindin skilar, hlutdrægni, mismunun og fordómum sem finnast í mállíkönum. Slík gervigreind getur verið öflugt hjálpartæki. Unnt er að nota hana meðal annars til þess að leita að heimildum og gera tillögur að svörum við spurningum um lögfræðileg álitaefni. Vegna þeirrar hættu sem felst í notkun gervigreindar og lýst er hér að framan verður að gæta varkárni við notkun hennar og taka sjálfstæða afstöðu til allra svara sem frá henni stafa.
Notkun spunagreindar hjá dómstólum þarf að samræmast grundvallarreglum um réttláta málsmeðferð og siðferðisviðmiðum sem dómarar hafa sett sér. Í því ljósi skipaði dómstólasýslan starfshóp, sem í sátu dómarar og aðstoðarmaður dómara, sem fékk það hlutverk að setja fram tillögu að stefnu um hlutverk spunagreindar hjá dómstólum og leiðbeinandi reglum um notkun hennar.
Starfshópurinn skilaði tillögum að stefnu og leiðbeinandi reglum 15. desember 2025. Stefna þessi byggir á vinnu starfshópsins, niðurstöðum skoðunarkönnunnar meðal starfsfólks dómstóla um notkun gervigreindar og samráði við forstöðumenn dómstóla. Í stefnunni koma fram grunnstoðir hennar. Þá eru skilgreind þau markmið sem notkun gervigreindar hjá dómstólum á að þjóna ásamt helstu meginreglum sem virða ber við þróun, innleiðingu og notkun hennar.
Þar sem notkun spunagreindarlausna felur í sér sérstakar áhættur setur dómstólasýslan í samráði við dómstóla leiðbeinandi reglur um notkun spunagreindar hjá dómstólum og dómstólasýslu.
Gildissvið stefnunnar
Stefnan tekur til notkunar gervigreindar í hvers kyns störfum dómara og annarra starfsmanna dómstóla og dómstólasýslu.
Grunnstoðir stefnunnar
Sjálfstætt dómsvald og óhlutdrægir og sjálfstæðir dómarar.
Trúverðugleiki dómstóla.
Réttlát málsmeðferð.
Friðhelgi einkalífs og persónuvernd.
Öryggi upplýsinga.
Þekking og skilningur starfsfólks á eiginleikum gervigreindar.
Markmið tengd notkun gervigreindar
Aukin skilvirkni í dómskerfinu, þar á meðal við nýtingu mannauðs og fjármuna.
Styttri málsmeðferðartími.
Bætt öflun upplýsinga og miðlun þeirra.
Meginreglur um notkun gervigreindar í dómskerfinu
Dómsvald er í höndum dómara eða aðstoðarmanna sem fara með úrlausn dómsmála í umboði dómstjóra. Í því felst að gervigreind verður aðeins notuð sem hjálpartæki en ekki til sjálfvirkrar ákvarðanatöku um niðurstöðu dómsmála. Sama gildir um töku stjórnvaldsákvarðana. Dómurum verður ekki gert skylt að nota spunagreindarlausnir í störfum sínum.
Tryggja ber öryggi viðkvæmra gagna, persónuupplýsinga og annarra trúnaðargagna sem vistuð eru hjá dómstólum og dómstólasýslu.
Staðreyna ber uppruna og réttmæti upplýsinga sem stafa frá gervigreind og leita frumheimilda.
Tryggja ber gagnsæi við notkun gervigreindar í starfsemi dómstóla.
Tryggja ber að dómarar og annað starfsfólk hafi þekkingu á eiginleikum gervigreindar og færni til að nota hana, m.a. með fræðslu og þjálfun starfsfólks.
Þannig samþykkt í stjórn dómstólasýslunnar 25. júní 2026.
Sigurður Tómas Magnússon formaður stjórnar dómstólasýslunnar.