Vefir dómstóla eru komnir á Ísland.is
6. maí 2026
Vefir dómstóla eru komnir á Ísland.is

Nýir vefir dómstóla og dómstólasýslu opnuðu 22. apríl síðastliðinn. Í ljós hafa komið ýmsar villur í nýrri dómaleitarvél sem má rekja til flutnings á gögnum úr fyrra vefkerfi.
Unnið hefur verið að lagfæringum og hefur tekist að leysa úr mörgum þeirra vandamála sem komu upp við yfirfærsluna. Áfram er unnið að því að bæta úr þeim atriðum sem eftir standa og er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.
Öllum ábendingum má koma á framfæri við dómstólasýsluna með því að senda þær á netfangið domstolasyslan@domstolasyslan.is.