Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

A07 - Stemmandi lyf, lyf við þarmabólgum / þarmasýkingum

A07A: Þarmasýkingalyf, A07B: Aðsogandi þarmalyf, A07D: Lyf sem draga úr hreyfingum í meltingarvegi, A07E: Lyf við þarmabólgum

Áhrif á blóðgjöf

Má ekki gefa blóð á meðan niðurgangur er til staðar eða ef undirliggjandi sjúkdómur leyfir ekki blóðgjöf.

Notkun lyfja vegna niðurgangs: Frestur blóðgjafar fer eftir undirliggjandi orsök.

Undantekningar og athugasemdir

Undantekning:

  • A07A: Þarmasýkingalyf (Dæmi: Nystatin, Dificlir) Má gefa blóð í fyrsta lagi 2 vikum eftir síðasta skammt ef undirliggjandi sjúkdómur leyfir blóðgjöf.

  • A07E: Lyf við þarmabólgum (Dæmi: Asacol, Salazopyrin) Má ekki gefa blóð vegna undirliggjandi sjúkdóms. Varanleg frávísun.

  • A07DA02: (Dæmi: Dropizol) Frestur fyrir blóðgjöf er 7 dagar.

  • A07DA03: (Dæmi: Imodium) enginn frestur, athuga skal orsök niðurgangs.

Sjá: Niðurgangur - uppköst, Bólgusjúkdómar í meltingarfærum

Lykilorð: Dæmi: A07A: Nystatin, Dificlir A07B: Kolsuspension A07D: Dropizol, Immex / Imodium / Loperamide A07E: Cortiment / Entocort, Salazopyrin, Asacol / Pentasa, Dipentum

Gildir frá: 15. apríl 2026