Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Niðurgangur - uppköst

Áhrif á blóðgjöf

Mikilvægt er að spyrja um orsök veikinda og meta hæfi til blóðgjafar út frá því. Athuga lyf, sjá lyfjalista.

  • Ef niðurgangur / uppköst orsakast af sýkingu (t.d.magapest): Má gefa blóð 2 vikum eftir að bata hefur verið náð. Ákveðið með öryggi blóðþega í huga.

  • Ef niðurgangur / uppköst orsakast af öðru en sýkingu (t.d. mataróþol, IBS): Fresta þarf blóðgjöf í 48 klst. Ákveðið með öryggi gjafa í huga.

Undantekningar og athugasemdir

Undantekning:

  • Ef niðurgangur / uppköst stafar af alvarlegri bakteríusýkingu (t.d. Campylobacter, Salmonella, Shigella, Nóró) má gefa blóð eftir 12 vikur (3 mánuði).

  • Ef niðurgangur er langvinnur eða tengist bólgusjúkdómi í þörmum má ekki gefa blóð.

Sjá: Stemmandi lyf

Til fróðleiks:

  • Bráður niðurgangur stafar oftast af sýkingu.

Lykilorð: Magapest, niðurgangur, magakveisa, ræpa, lífsýki, diarrhea, vomiting, þunnlífi, fituskita, iðrasýking, uppköst, uppsala, sjálfsuppköst, starfræn uppköst, ælupest, æla, gubba, gubbupest, Campylobacter, Salmonella, Shigella

Gildir frá: 15. apríl 2026