Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 13. apríl 2025

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 11. sept. 2015 – 30. nóv. 2019 Sjá lokaútgáfu
Sýnir breytingar gerðar 11. sept. 2015 af rg.nr. 713/2015

660/2015

Reglugerð um mat á umhverfisáhrifum.

I. KAFLI Markmið, gildissvið og skilgreiningar.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðarinnar er:

  1. að tryggja að áður en leyfi er veitt fyrir framkvæmd, sem kann vegna staðsetningar, starfsemi sem henni fylgir, eðlis eða umfangs að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, hafi farið fram mat á umhverfisáhrifum viðkomandi framkvæmdar,
  2. að draga eins og kostur er úr neikvæðum umhverfisáhrifum framkvæmdar,
  3. að stuðla að samvinnu þeirra aðila sem hafa hagsmuna að gæta eða láta sig málið varða vegna framkvæmda sem falla undir ákvæði þessarar reglugerðar,
  4. að kynna fyrir almenningi umhverfisáhrif framkvæmda sem falla undir ákvæði þessarar reglugerðar og mótvægisaðgerðir vegna þeirra og gefa almenningi kost á að koma að athugasemdum og upplýsingum áður en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar liggur fyrir.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um framkvæmdir sem falla undir ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum, á landi, í landhelgi, í lofthelgi og í mengunarlögsögu Íslands.

3. gr. Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari er merking eftirtalinna orða og orðasambanda sem hér segir:

  1. Framkvæmdaraðili: Ríki, sveitarfélag, stofnun og aðrir lögaðilar eða einstaklingar er hyggjast hefja framkvæmd sem reglugerð þessi tekur til.
  2. Framkvæmd: Hvers konar nýframkvæmd eða breyting á eldri framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir sem undir reglugerð þessa falla.
  3. Frummatsskýrsla: Skýrsla framkvæmdaraðila um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar og starfsemi sem henni fylgir sem Skipulagsstofnun auglýsir.
  4. Fyrirhuguð framkvæmd: Framkvæmd sem er komin á það stig að hún geti hlotið málsmeðferð skv. V. kafla þessarar reglugerðar.
  5. Leyfi til framkvæmda: Framkvæmdaleyfi og byggingarleyfi samkvæmt skipulagslögum og lögum um mannvirki önnur leyfi til starfsemi og framkvæmda samkvæmt sérlögum sem um viðkomandi framkvæmd gilda.
  6. Leyfisveitandi: Lögbært yfirvald sem veitir leyfi til framkvæmda og starfsemi sem þeim fylgir, svo sem sveitarstjórnir, byggingarfulltrúar, heilbrigðisnefndir, Orkustofnun og Umhverfisstofnun.
  7. Matsáætlun: Áætlun framkvæmdaraðila byggð á tillögu hans um á hvaða þætti framkvæmdarinnar og umhverfis leggja skuli áherslu í frummatsskýrslu og um kynningu og samráð við gerð frummatsskýrslu.
  8. Matsskyld framkvæmd: Framkvæmd sem háð er ákvæðum reglugerðar þessarar ásamt þeirri starfsemi sem henni fylgir.
  9. Matsskýrsla: Skýrsla framkvæmdaraðila um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar og starfsemi sem henni fylgir þar sem gerð er grein fyrir fram komnum athugasemdum og umsögnum og þar sem tekin er afstaða til þeirra ásamt tillögum um mótvægisaðgerðir eftir því sem við á. Framkvæmdaraðili ber ábyrgð á gerð matsskýrslu.
  10. Mengunarlögsaga Íslands: Hafsvæðið sem nær yfir innsævi að meðtalinni strönd að efstu flóðmörkum á stórstraumsflóði, landhelgi og efnahagslögsögu, landgrunn Íslands og efstu jarðlög, sbr. lög um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn.
  11. Mótvægisaðgerðir: Aðgerðir til að koma í veg fyrir, draga úr eða bæta fyrir neikvæð umhverfisáhrif.
  12. Umhverfi: Samheiti fyrir menn, dýr, plöntur og annað í lífríkinu, jarðveg, jarðmyndanir, vatn, loft, veðurfar og landslag, samfélag, heilbrigði, menningu og menningarminjar, atvinnu og efnisleg verðmæti.
  13. Umhverfisáhrif: Áhrif framkvæmdar og starfsemi sem henni fylgir á umhverfi, þ.e. bein og óbein áhrif, jákvæð og neikvæð áhrif, varanleg og tímabundin áhrif, afturkræf og óafturkræf áhrif, samvirk og sammögnuð áhrif. Þar með eru þó ekki talin þjóðhagsleg áhrif og arðsemi einstakra framkvæmda.
  14. Umhverfisverndarsamtök: Samtök sem hafa umhverfisvernd að meginmarkmiði. Þau skulu vera opin fyrir almennri aðild, gefa út ársskýrslur um starfsemi sína og hafa endurskoðað bókhald.
  15. Umsagnaraðilar: Opinberar stofnanir og stjórnvöld sem sinna lögbundnum verkefnum er varða matsskyldar framkvæmdir eða umhverfisáhrif þeirra.
  16. Umtalsverð umhverfisáhrif: Veruleg óafturkræf umhverfisáhrif eða veruleg spjöll á umhverfinu sem ekki er hægt að fyrirbyggja eða bæta úr með mótvægisaðgerðum.

II. KAFLI Stjórnsýsla, framkvæmdaraðili o.fl.

4. gr. Yfirstjórn og framkvæmd.

Ráðherra umhverfis- og auðlindamála fer með yfirstjórn þeirra mála sem reglugerð þessi tekur til.

Á varnar- og öryggissvæðum fer ráðherra varnarmála með lögsögu í samræmi við skilgreiningu í varnarmálalögum, nr. 34/2008, sbr. og lög um lagagildi varnarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna og um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þess, nr. 110/1951, og lög um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, nr. 176/2006.

Skipulagsstofnun er ráðherra til ráðgjafar og annast eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar og veitir leiðbeiningar samkvæmt henni.

5. gr. Hlutverk Skipulagsstofnunar.

Hlutverk Skipulagsstofnunar samkvæmt reglugerð þessari er:

  1. að annast framkvæmd reglugerðar þessarar,
  2. að veita og gefa út leiðbeiningar um mat á umhverfisáhrifum, m.a. lista yfir helstu umsagnaraðila og starfssvið þeirra og um afgreiðslu framkvæmda í flokki C í 1. viðauka,
  3. að hafa samráð við framkvæmdaraðila um mat á umhverfisáhrifum, sbr. 9. gr.,
  4. að stuðla að því að almenningur hafi aðgang að upplýsingum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda,
  5. að kynna og afla umsagnar um tillögu að matsáætlun og um frummatsskýrslu,
  6. að taka ákvörðun um tillögu framkvæmdaraðila að matsáætlun,
  7. að gefa álit um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og starfsemi sem þeim fylgir,
  8. að taka ákvörðun um hvort framkvæmd sem tilgreind er í flokki B í 1. viðauka og framkvæmd sem tilgreind er í flokki C í 1. viðauka, sem ekki er háð byggingarleyfi byggingarfulltrúa eða framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar, skuli háðar mati á umhverfisáhrifum,
  9. að hafa eftirlit með því að framkvæmd í flokki C í 1. viðauka, sem tilkynnt er sveitarstjórn sbr. 6. gr., hafi fengið viðeigandi málsmeðferð samkvæmt reglugerð þessari,
  10. að taka ákvörðun um sameiginlegt mat samkvæmt 6. mgr. 10. gr.,
  11. að taka ákvörðun um endurskoðun matsskýrslu samkvæmt 28. gr.

6. gr. Hlutverk sveitarfélaga.

Sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort framkvæmd, sem háð er framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar eða byggingarleyfi byggingarfulltrúa samkvæmt skipulagslögum eða lögum um mannvirki og tilgreind er í flokki C í 1. viðauka, skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

7. gr. Hlutverk framkvæmdaraðila.

Framkvæmdaraðili ber ábyrgð á mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar samkvæmt 15.-27. gr. Hann ber kostnað af vinnu Skipulagsstofnunar við umfjöllun hennar um viðkomandi framkvæmd samkvæmt 15.-27. gr. sem og af auglýsingum og kynningu.

Framkvæmdaraðili ber ábyrgð á því að tilkynna framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki B og C í 1. viðauka til ákvörðunar um hvort þær skuli háðar mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdaraðili ber kostnað af málsmeðferð sveitarfélaga vegna ákvörðunar um matsskyldu fyrirhugaðrar framkvæmdar sem fellur í flokk C í 1. viðauka og er tilkynningarskyld til sveitarstjórnar samkvæmt 14. gr.

8. gr. Hlutverk umsagnaraðila.

Umsagnaraðilar veita Skipulagsstofnun og sveitarstjórnum umsagnir um matsskyldu framkvæmda, tillögur að matsáætlun og frummatsskýrslur, hvað varðar þau atriði sem falla undir starfssvið þeirra, sbr. 12.-14. gr., 17. gr. og 24. gr.

9. gr. Samráð og kynning.

Framkvæmdaraðili skal hafa forgöngu um samráð við Skipulagsstofnun á öllum stigum um mat á umhverfisáhrifum og umfjöllun um það. Samráð skal hefja eins snemma og kostur er og a.m.k. vera viðhaft við gerð tillögu að matsáætlun og umfjöllun um frummatsskýrslu.

Framkvæmdaraðili skal hafa forgöngu um að kynna umsagnaraðilum og almenningi tillögu að matsáætlun og frummatsskýrslu í þeim tilgangi að fá fram ábendingar og athugasemdir.

III. KAFLI Matsskylda framkvæmda.

10. gr. Matsskyldar og tilkynningarskyldar framkvæmdir.

Þær framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki A í 1. viðauka skulu ávallt háðar mati á umhverfisáhrifum, sbr. V.-VIII. kafla.

Framkvæmdaraðila ber að tilkynna framkvæmdir, sem tilgreindar eru í flokki B í 1. viðauka, til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu, sbr. IV. kafla. Sama á við um þær framkvæmdir í flokki C í 1. viðauka sem ekki eru háðar byggingarleyfi byggingarfulltrúa eða framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar.

Framkvæmdaraðila ber að tilkynna til sveitarstjórnar til ákvörðunar um matsskyldu þær framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki C í 1. viðauka og háðar eru framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar og byggingarleyfi byggingarfulltrúa, sbr. IV. kafla.

Öllum er heimilt að bera fram fyrirspurn til Skipulagsstofnunar um hvort tiltekin framkvæmd falli undir 1. viðauka og skal þá stofnunin leita upplýsinga um framkvæmdina hjá framkvæmdaraðila og leyfisveitanda og taka ákvörðun um hvort hún eigi undir flokk A, B eða C í 1. viðauka.

Telji framkvæmdaraðili með hliðsjón af viðmiðunum sem fram koma í 2. viðauka að framkvæmd, sem tilgreind er í flokki B eða C í 1. viðauka, skuli undirgangast mat á umhverfisáhrifum skal hann tilkynna Skipulagsstofnun um það ásamt rökstuðningi. Fallist Skipulagsstofnun á þá afstöðu hans er heimilt að sleppa málsmeðferð skv. 11.-14. gr.

Í þeim tilvikum þegar fleiri en ein matsskyld framkvæmd er fyrirhuguð á sama svæði eða framkvæmdirnar eru háðar hver annarri getur Skipulagsstofnun að höfðu samráði við viðkomandi framkvæmdaraðila og leyfisveitendur ákveðið að umhverfisáhrif þeirra skuli metin sameiginlega. Skipulagsstofnun kynnir almenningi niðurstöðu sína með auglýsingu í dagblaði sem gefið er út á landsvísu innan viku frá því að hún liggur fyrir.

IV. KAFLI Tilkynning framkvæmda í flokki B og C.

11. gr. Gögn með tilkynningu framkvæmda í flokki B og C.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja tilkynningu framkvæmdar í flokki B og C eftir því sem við á, að teknu tilliti til eðlis og umfangs framkvæmdar:

  1. lýsing á fyrirhugaðri framkvæmd, umfangi hennar og helstu framkvæmda- og rekstrarþáttum, sbr. 1. tl. 2. viðauka,
  2. hnitsettur uppdráttur sem sýnir staðsetningu fyrirhugaðrar framkvæmdar, mörk framkvæmdasvæðis, mannvirki sem fyrir eru á svæðinu og upplýsingar um fyrirhugaða framkvæmd,
  3. upplýsingar um hvernig fyrirhuguð framkvæmd fellur að gildandi skipulagsáætlunum,
  4. lýsing á staðháttum, landslagi, gróðurfari og landnotkun og hvort fyrirhugað framkvæmdasvæði sé á eða nærri verndarsvæðum, sbr. 2. tl. 2. viðauka,
  5. lýsing á hvaða þættir framkvæmdar og/eða rekstrar valda helst áhrifum á umhverfið, sbr. 3. tl. 2. viðauka, upplýsingar um fyrirliggjandi álit umsagnaraðila og annarra eftir eðli máls sem framkvæmdaraðili kann að hafa leitað eftir.

12. gr. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda í flokki B.

Skipulagsstofnun ákvarðar að framkvæmdir, sem tilgreindar eru í flokki B í 1. viðauka skuli háðar mati á umhverfisáhrifum þegar þær eru taldar geta haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif með hliðsjón af einu eða fleiri viðmiðum í 2. viðauka.

Skipulagsstofnun skal, innan 4 vikna frá því að fullnægjandi gögn um framkvæmd berast frá framkvæmdaraðila, taka ákvörðun um hvort framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Við ákvörðun um matsskyldu skal Skipulagsstofnun fara eftir viðmiðum í 2. viðauka. Áður skal hún leita umsagna leyfisveitenda og annarra eftir eðli máls hverju sinni.

Í umsögn skal koma fram hvort tilkynning geri nægilega grein fyrir framkvæmd, umhverfi, umhverfisáhrifum, mótvægisaðgerðum og vöktun eftir því sem við á og hvort og þá á hvaða forsendum umsagnaraðili telur að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum út frá þeim atriðum sem falla undir starfssvið umsagnaraðila og að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka. Jafnframt skal gera grein fyrir viðeigandi leyfum sem eru á starfssviði þeirra aðila sem umsagnar hefur verið leitað hjá, þegar það á við. Skipulagsstofnun skal veita þeim aðilum, sem leitað er umsagna hjá, a.m.k. 10 virka daga til að gefa umsögn um matsskyldu framkvæmdar og framkvæmdaraðila a.m.k. 3 virka daga til að fara yfir fram komnar umsagnir og koma á framfæri athugasemdum sínum.

Taki framkvæmdaraðili sér lengri frest til að fara yfir fram komnar umsagnir skal hann tilkynna Skipulagsstofnun það og skal þá frestur Skipulagsstofnunar til að taka ákvörðun lengjast sem því nemur.

Skipulagsstofnun skal gera framkvæmdaraðila, þeim sem leitað var umsagna hjá og öðrum, sem málið varðar, grein fyrir ákvörðun sinni um matsskyldu.

Skipulagsstofnun kynnir almenningi niðurstöðu sína með auglýsingu í dagblaði sem gefið er út á landsvísu innan viku frá því að ákvörðun um matsskyldu liggur fyrir. Niðurstaða Skipulagsstofnunar skal vera aðgengileg á vef stofnunarinnar.

13. gr. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda í flokki C.

Skipulagsstofnun ákvarðar að framkvæmdir, sem tilgreindar eru í flokki C í 1. viðauka og tilkynna ber til stofunarinnar sbr. 2. mgr. 10. gr. skuli háðar mati á umhverfisáhrifum þegar þær eru taldar geta haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif með hliðsjón af einu eða fleiri viðmiðum í 2. viðauka.

Skipulagsstofnun skal, innan 2 vikna frá því að fullnægjandi gögn um framkvæmd berast frá framkvæmdaraðila, taka ákvörðun um hvort framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Við ákvörðun um matsskyldu skal fara eftir viðmiðum í 2. viðauka.

Skipulagsstofnun er heimilt að leita umsagna leyfisveitenda og annarra umsagnaraðila, eftir eðli máls hverju sinni. Leiti Skipulagsstofnun umsagna lengist frestur hennar til að taka ákvörðun um matsskyldu um eina viku. Í umsögnum vegna framkvæmda í flokki C í 1. viðauka skulu, eftir því sem við á, koma fram sömu atriði og nefnd eru í 3. mgr. 12. gr.

Skipulagsstofnun skal gera framkvæmdaraðila, leyfisveitendum, þeim sem leitað var umsagna hjá og öðrum sem málið varðar grein fyrir ákvörðun sinni um matsskyldu.

Skipulagsstofnun kynnir almenningi niðurstöðu sína með áberandi hætti, svo sem með auglýsingu í svæðisbundnum fréttamiðli, þegar ákvörðun um matsskyldu liggur fyrir. Niðurstaða Skipulagsstofnunar skal vera aðgengileg á vef stofnunarinnar.

14. gr. Ákvörðun sveitarstjórna um matsskyldu framkvæmda í flokki C.

Sveitarstjórn ákvarðar að framkvæmdir, sem tilgreindar eru í flokki C í 1. viðauka og tilkynna ber sveitarstjórn, sbr. 3. mgr. 10. gr. skuli háðar mati á umhverfisáhrifum þegar þær eru taldar geta haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif með hliðsjón af einu eða fleiri viðmiðum í 2. viðauka.

Sveitarstjórn skal, innan 2 vikna frá því að fullnægjandi gögn um framkvæmd berast frá framkvæmdaraðila, taka ákvörðun um hvort framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Við ákvörðun um matsskyldu skal fara eftir viðmiðum í 2. viðauka.

Sveitarstjórn er heimilt að leita umsagna leyfisveitenda og annarra umsagnaraðila, eftir eðli máls hverju sinni. Leiti sveitarstjórn umsagna lengist frestur sveitarstjórnar til að taka ákvörðun um matsskyldu um eina viku. Í umsögnum vegna framkvæmda í flokki C í 1. viðauka skulu, eftir því sem við á, koma fram sömu atriði og nefnd eru í 3. mgr. 12. gr.

Sveitarstjórn skal gera framkvæmdaraðila, Skipulagsstofnun, þeim sem leitað var umsagna hjá og öðrum sem málið varðar grein fyrir ákvörðun sinni um matsskyldu.

Sveitarstjórn kynnir almenningi niðurstöðu sína með áberandi hætti, svo sem með auglýsingu í svæðisbundnum fréttamiðli þegar ákvörðun um matsskyldu liggur fyrir. Niðurstaða sveitarstjórnar skal vera aðgengileg á vef sveitarfélagsins og Skipulagsstofnunar.

V. KAFLI Matsáætlun.

15. gr. Tillaga að matsáætlun.

Framkvæmdaraðili skal, vegna framkvæmda sem háðar eru mati á umhverfisáhrifum, leggja fram tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar eins snemma á undirbúningsstigi framkvæmdar og kostur er, þ.e. þegar meginþættir framkvæmdar eru orðnir það ljósir að hægt sé að fá yfirlit yfir fyrirhugaða framkvæmd, áhrifasvæði og helstu áhersluþætti matsvinnunnar.

Í tillögu að matsáætlun skal eftirfarandi koma fram eftir umfangi og eðli framkvæmdar, eftir því sem við á:

  1. Upplýsingar um framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir:

    1. heiti framkvæmdar, möguleg staðsetning, nafn framkvæmdaraðila og dagsetning,
    2. lýsing á framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir, tilgangi, afmörkun og umfangi hennar og mögulegri áfangaskiptingu,
    3. upplýsingar um matsskyldu framkvæmdar, með vísan til viðeigandi liða í 1. viðauka,
    4. upplýsingar um hvaða leyfum framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir er háð og hvort fyrirhugað sé að vinna samtímis að frummatsskýrslu og starfsleyfi vegna starfsleyfisskyldra framkvæmda, sbr. 33. gr.
  2. Upplýsingar um framkvæmdasvæði:

    1. upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir á sama svæði ef þær eru fyrir hendi,
    2. lýsing á staðháttum framkvæmdasvæðis: landslagi, gróðurfari, dýralífi og landnotkun, yfirlit um verndarsvæði og kvaðir og takmarkanir á landnotkun, s.s. vegna náttúruvár,
    3. uppdráttur af mögulegri staðsetningu framkvæmdar og áhrifasvæðis hennar,
    4. fyrirliggjandi skipulagsáætlanir og lýsing á hvernig fyrirhuguð framkvæmd samræmist þeim eða upplýsingar um stöðu við gerð skipulagsáætlana,
    5. upplýsingar um mögulega framkvæmdakosti sem til greina koma, m.a. núllkost, þ.e. að aðhafast ekkert, greina frá umfangi og tilhögun annarra kosta og staðsetningu þeirra.
  3. Upplýsingar um umfang og áherslur mats á umhverfisáhrifum:

    1. greining á því hvaða þættir framkvæmdar og starfsemi, sem henni fylgir, séu líklegir til að valda umhverfisáhrifum og lýsing á þeim, s.s. stærð og gerð mannvirkja, framleiðsluferlum, magni og gerð mengunarefna og hljóðstigi frá starfsemi,
    2. greining á því hvaða þættir umhverfisins er talið líklegt að geti helst orðið fyrir áhrifum þegar tekið er tillit til allra umhverfisáhrifa framkvæmdarinnar miðað við fyrirliggjandi vitneskju,
    3. lýsing á því hvernig fyrirhugað er að standa að mati á umhverfisáhrifum, s.s. um gagnaöflun, rannsóknarsvæði, tímasetningu athugana, tíðni mælinga, úrvinnslu gagna, aðferðir við mat og framsetningu niðurstaðna.
  4. Upplýsingar um afstöðu þeirra aðila sem þegar hafa tjáð sig um framkvæmdina eða tillögu að matsáætlun.
  5. Áætlun um kynningu, álitsumleitan og samráð við vinnslu frummatsskýrslu.
  6. Tíma- og kostnaðaráætlanir, svo sem tímaáætlun um vinnslu frummatsskýrslu og matsskýrslu, athugasemda- og umsagnarfrestir, opinber umfjöllun Skipulagsstofnunar, áætlun um framkvæmda- og rekstrartíma. Framkvæmdaraðila er heimilt að greina frá kostnaðaráætlun vegna rannsókna og vinnu við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.

16. gr. Kynning og samráð við gerð tillögu að matsáætlun.

Framkvæmdaraðili leitar samráðs eins snemma og kostur er. Framkvæmdaraðila ber að kynna umsagnaraðilum og almenningi tillögu að matsáætlun. Framkvæmdaraðili skal kynna tillöguna með auglýsingu sem vísi á veraldarvefinn og gefa almenningi kost á að lágmarki tveimur vikum til að koma á framfæri athugasemdum við tillöguna. Framkvæmdaraðili getur auk þess kynnt tillöguna á almennum kynningarfundi eða í opnu húsi.

Framkvæmdaraðila ber að hafa samráð við Skipulagsstofnun við gerð tillögu að matsáætlun.

17. gr. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsáætlun.

Þegar framkvæmdaraðili hefur sent Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun ber stofnuninni að leita eftir umsögn leyfisveitenda og eftir atvikum annarra aðila. Í umsögn skal koma fram hvort tillagan geri nægilega grein fyrir framkvæmd og hvort upplýsingar teljist fullnægjandi um hvernig staðið verður að gagnaöflun, úrvinnslu gagna, mati á umhverfisáhrifum og framsetningu mats í frummatsskýrslu, og ef á skortir, hvaða atriðum þurfi að mati framangreindra aðila að gera frekari skil. Leyfisveitendur skulu í umsögn sinni gera grein fyrir þeim leyfum sem eru á starfssviði þeirra og framkvæmd er háð.

Tillagan skal vera aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar. Koma skal fram að allir hafi rétt til að senda stofnuninni skriflegar athugasemdir um matsáætlunina innan tilgreinds tímafrests.

Skipulagsstofnun ber að taka ákvörðun um fram komna tillögu að matsáætlun innan fjögurra vikna frá því að tillagan berst stofnuninni. Skipulagsstofnun skal veita umsagnaraðilum a.m.k. 10 virka daga til að gefa umsögn um tillögu að matsáætlun og framkvæmdaraðila a.m.k. 3 virka daga til að fara yfir fram komnar umsagnir og koma að athugasemdum sínum. Taki framkvæmdaraðili sér lengri frest til að fara yfir fram komnar umsagnir skal hann tilkynna Skipulagsstofnun um það og lengist þá frestur Skipulagsstofnunar til að taka ákvörðun sem því nemur.

Skipulagsstofnun getur fallist á tillögu að matsáætlun með eða án athugasemda. Geri stofnunin athugasemdir í niðurstöðu sinni verða þær hluti af matsáætlun.

Fallist Skipulagsstofnun ekki á tillögu að matsáætlun skal stofnunin rökstyðja ákvörðun sína, gera grein fyrir því sem hún telur ábótavant og leiðbeina framkvæmdaraðila um frekari vinnslu tillögu að matsáætlun.

Skipulagsstofnun skal senda niðurstöðu sína um tillögu framkvæmdaraðila til væntanlegra leyfisveitenda og annarra umsagnaraðila. Niðurstaða Skipulagsstofnunar skal vera aðgengileg á vef stofnunarinnar.

18. gr. Kostnaðaráætlun Skipulagsstofnunar.

Þegar matsáætlun hefur verið samþykkt skal Skipulagsstofnun leggja fram sundurliðaða kostnaðaráætlun vegna umfjöllunar á vegum stofnunarinnar við mat á umhverfisáhrifum, svo sem um umfjöllun um frummatsskýrslu, kynningu og auglýsingu, sérfræðiálit, athugun og álit. Kostnaðaráætlun skal byggð á gjaldskrá sem ráðherra hefur staðfest. Þá skal Skipulagsstofnun leggja fram upplýsingar um kostnað sem fallið hefur til við umfjöllun um tillögu að matsáætlun. Skipulagsstofnun skal greina framkvæmdaraðila eins fljótt og kostur er frá því ef forsendur kostnaðaráætlunar breytast.

VI. KAFLI Frummatsskýrsla.

19. gr. Drög að frummatsskýrslu.

Heimilt er framkvæmdaraðila að kynna Skipulagsstofnun drög að frummatsskýrslu og óska eftir athugasemdum Skipulagsstofnunar við hana áður en hann leggur fram frummatsskýrslu sína.

20. gr. Efni frummatsskýrslu.

Frummatsskýrsla skal vera í samræmi við matsáætlun, og í henni skulu koma fram öll þau gögn sem nauðsynleg eru til þess að greina og meta helstu áhrif sem framkvæmd er líkleg til að hafa á umhverfið.

Í frummatsskýrslu skal eftirfarandi koma fram eftir því sem við á:

  1. Upplýsingar um framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir, einkum:

    1. lýsing á framkvæmd, hönnun hennar, afmörkun og umfangi, áfangaskiptingu ef við á, fyrirhugaðri staðsetningu og landrýmisþörf á framkvæmda- og rekstrartíma,
    2. upplýsingar um tilgang framkvæmdar, hver er framkvæmdaraðili og upplýsingar um áætlaðan framkvæmdakostnað, þ.e. ef hann fellur ekki undir viðskiptaleynd,
    3. upplýsingar um matsskyldu framkvæmdar, með vísan til viðeigandi liða í 1. viðauka,
    4. lýsing á helstu framleiðsluferlum og upplýsingar um nýtingu náttúruauðlinda, svo sem jarðefna, vatns, orku, annarra hráefna, og mannaflaþörf á framkvæmda- og rekstrartíma,
    5. áætlun um losun (mengun vatns, lofts og jarðvegs, hávaða, titring, ljós, hita, geislun o.s.frv.) og um tegund og magn úrgangs,
    6. upplýsingar um framkvæmdir á vegum annarra aðila sem eru forsenda hinnar fyrirhuguðu framkvæmdar,
    7. upplýsingar um hvaða leyfum framkvæmd og starfsemi, sem henni fylgir, er háð ásamt upplýsingum um stöðu starfsleyfisundirbúnings vegna starfsleyfisskyldra framkvæmda,
    8. yfirlit yfir valkosti sem gerð er grein fyrir í frummatsskýrslu, svo sem aðra kosti varðandi tæknilega útfærslu framkvæmdar eða starfsemi, aðra staðarvalskosti eða núllkost, þ.e. að aðhafast ekkert,
    9. upplýsingar um áætlaðan framkvæmda- og rekstrartíma.
  2. Upplýsingar um framkvæmdasvæði, svo sem:

    1. uppdráttur af fyrirhugaðri staðsetningu framkvæmdar og einnig uppdráttur af öðrum staðarvalskostum,
    2. uppdráttur af líklegu áhrifasvæði framkvæmdar,
    3. lýsing á framkvæmdasvæði og áætluðu áhrifasvæði fyrirhugaðrar framkvæmdar, svo sem landslagi, gróðurfari, byggð og landnotkun; fram skal koma hvort svæðið, að hluta eða heild, nýtur verndar eða hvort um það gilda aðrar kvaðir eða takmarkanir á landnotkun, svo sem vegna náttúruvár,
    4. upplýsingar um aðrar fyrirhugaðar framkvæmdir á svæðinu, liggi þær fyrir,
    5. upplýsingar um stöðu skipulagsmála á og nærri framkvæmdasvæði, hvort fyrirhuguð framkvæmd samræmist gildandi skipulagsáætlunum og hvernig fyrirhuguð framkvæmd tengist alþjóðasamningum og skuldbindingum.
  3. Mat á umhverfisáhrifum. Þar komi fram:

    1. lýsing á því hvaða þættir framkvæmdar og starfsemi, sem henni fylgir, eru taldir geta valdið umhverfisáhrifum, svo sem stærð og gerð mannvirkja, framleiðsluferlar, magn og gerð mengunarefna og hljóðstig frá starfsemi,
    2. lýsing á þeim þáttum umhverfisins sem taldir eru geta orðið fyrir áhrifum af fyrirhugaðri framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir,
    3. lýsing á þeirri aðferðarfræði sem beitt hefur verið til að segja fyrir um áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið,
    4. niðurstöður mats á umhverfisáhrifum, þ.e. mat á líklegum umhverfisáhrifum framkvæmdar og áhrifum starfsemi, sem henni fylgir, á umhverfið og líffræðilega fjölbreytni vegna tilkomu hennar, nýtingar náttúruauðlinda, losunar mengunarefna, ónæðis og/eða úrgangs,
    5. amanburður á umhverfisáhrifum þeirra kosta sem kynntir eru og rökstuðningur fyrir vali framkvæmdaraðila að teknu tilliti til umhverfisáhrifa,
    6. lýsing á fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum,
    7. upplýsingar um þá erfiðleika, tæknilega annmarka eða skort á þekkingu sem framkvæmdaraðili kann að hafa staðið frammi fyrir við mat á umhverfisáhrifum,
    8. tillaga að vöktunaráætlun.
    9. flokkun umhverfisþátta, viðmið, einkenni og vægi umhverfisáhrifa á grundvelli leiðbeininga sem Skipulagsstofnun gefur út.
  4. Upplýsingar um kynningu, álitsumleitan og samráð sem staðið hefur verið að af hálfu framkvæmdaraðila við mat á umhverfisáhrifum og upplýsingar um afstöðu þeirra aðila sem hafa tjáð sig um framkvæmdina, matsáætlun eða frummatsskýrslu á vinnslustigi.
  5. Stutt og skýr samantekt um frummatsskýrslu og niðurstöður hennar.

21. gr. Beiðni um frekari gögn.

Ef sérstakar ástæður mæla með getur Skipulagsstofnun farið fram á að framkvæmdaraðili leggi fram frekari gögn en gert er ráð fyrir í samþykktri matsáætlun, við gerð frummatsskýrslu og við athugun stofnunarinnar, sbr. 22. gr., enda rökstyðji stofnunin beiðnina sérstaklega.

VII. KAFLI Athugun og álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.

22. gr. Athugun Skipulagsstofnunar á frummatsskýrslu.

Innan tveggja vikna frá því að Skipulagsstofnun tekur á móti frummatsskýrslu skal stofnunin meta hvort frummatsskýrslan uppfylli þær kröfur sem gerðar eru í 20. gr. og sé í samræmi við samþykkta matsáætlun skv. 17. gr., og ef við á, taka afstöðu til röksemda framkvæmdaraðila vegna frávika í frummatsskýrslu frá samþykktri matsáætlun.

Heimilt er Skipulagsstofnun að hafna því að taka frummatsskýrslu til athugunar í þeim tilvikum þegar hún uppfyllir ekki framangreind skilyrði. Skipulagsstofnun skal þá leiðbeina framkvæmdaraðila um frekari vinnslu frummatsskýrslu.

23. gr. Kynning á frummatsskýrslu.

Telji Skipulagsstofnun frummatsskýrslu vera í samræmi við matsáætlun og ákvæði 20. gr. auglýsir stofnunin hina fyrirhuguðu framkvæmd og frummatsskýrslu með auglýsingu í Lögbirtingablaði, dagblaði sem gefið er út á landsvísu, og eftir því sem við á, í fjölmiðli sem ætla má að nái til þeirra sem búa nærri framkvæmdasvæði.

Framkvæmdaraðili skal kynna almenningi framkvæmd og frummatsskýrslu í samráði við Skipulagsstofnun eftir að skýrslan hefur verið auglýst. Skipulagsstofnun getur vikið frá þeirri kröfu ef sýnt þykir að framkvæmd og frummatsskýrsla hafi hlotið fullnægjandi kynningu.

Frummatsskýrslan skal liggja frammi á aðgengilegum stað nærri framkvæmdasvæði og hjá Skipulagsstofnun í sex vikur eftir að Skipulagsstofnun hefur kynnt hana, sbr. 1. mgr., sem jafnframt er sá frestur sem gefst til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun. Öllum er heimilt að gera athugasemdir við framlagða frummatsskýrslu.

24. gr. Umsagnir og sérfræðiálit.

Skipulagsstofnun skal leita umsagnar leyfisveitenda og annarra aðila eftir því sem við á. Umsagnaraðilar skulu fjalla um hvort á fullnægjandi hátt sé gerð grein fyrir eftirtöldum atriðum sem eru á starfsviði þeirra, í frummatsskýrslu, eftir því sem við á:

  1. fyrirhugaða framkvæmd,
  2. umhverfi,
  3. umhverfisáhrif,
  4. mótvægisaðgerðir,
  5. vöktun,
  6. þörf á að kanna tiltekin atriði frekar.

Skipulagsstofnun skal veita umsagnaraðilum a.m.k. þriggja vikna frest til að gefa umsögn um frummatsskýrslu.

Komi umsagnaraðili fram með ný atriði sem ekki hafa komið fram í umfjöllun hans á fyrri stigum ber honum að gera sérstaklega grein fyrir því og ástæðu þess að það hafi ekki komið fram fyrr.

Skipulagsstofnun er heimilt að leita álits sérfræðinga á ákveðnum þáttum frummatsskýrslu og fram komnum gögnum að höfðu samráði við framkvæmdaraðila, sbr. 18. gr. Leiti stofnunin sérfræðiálits skal í áliti stofnunarinnar tilgreina ástæður þess.

25. gr. Matsskýrsla framkvæmdaraðila.

Skipulagsstofnun skal senda framkvæmdaraðila umsagnir og athugasemdir og sérfræðiálit þegar við á sem henni berast við frummatsskýrslu. Þegar umsagnir og athugasemdir hafa borist framkvæmdaraðila skal hann vinna endanlega matsskýrslu á grundvelli frummatsskýrslu. Í matsskýrslu skal framkvæmdaraðili gera grein fyrir fram komnum athugasemdum og umsögnum og taka afstöðu til þeirra og senda hana síðan til Skipulagsstofnunar til athugunar og álits.

26. gr. Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.

Athugun Skipulagsstofnunar lýkur með áliti innan fjögurra vikna frá því að stofnunin tekur á móti matsskýrslu. Stofnunin skal gefa rökstutt álit sitt á því hvort skýrslan uppfylli skilyrði laga um mat á umhverfisáhrifum og reglugerðar þessarar og að umhverfisáhrifum sé lýst á fullnægjandi hátt. Í áliti Skipulagsstofnunar skal gera grein fyrir helstu forsendum matsins, þ.m.t. gildi þeirra gagna sem liggja til grundvallar matinu, og niðurstöðum þess. Jafnframt skal í álitinu fjalla um afgreiðslu framkvæmdaraðila á þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust við kynningu á frummatsskýrslu.

Telji Skipulagsstofnun að setja þurfi frekari skilyrði fyrir framkvæmdinni eða gera þurfi aðrar eða frekari mótvægisaðgerðir en fram koma í matsskýrslu skal stofnunin tilgreina skilyrðin og mótvægisaðgerðirnar og færa rök fyrir þeim. Skal stofnunin einnig taka fram undir hvaða leyfisveitanda það falli að hafa eftirlit með að farið sé að settum skilyrðum.

Telji Skipulagsstofnun að matsskýrsla framkvæmdaraðila víki frá frummatsskýrslu hvað varðar mikilvæga þætti málsins skal hún auglýst að nýju skv. 23. gr.

27. gr. Kynning á áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.

Þegar álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir skal það kynnt ráðherra , framkvæmdaraðila, leyfisveitendum og öðrum umsagnaraðilum, svo og þeim sem gert hafa athugasemdir við frummatsskýrslu á kynningartíma. Almenningur skal eiga greiðan aðgang að áliti Skipulagsstofnunar og matsskýrslu og skal stofnunin innan viku frá því að álitið lá fyrir auglýsa í dagblaði sem gefið er út á landsvísu að það og matsskýrslan liggi fyrir. Álit Skipulagsstofnunar skal vera aðgengilegt á vef stofnunarinnar.

28. gr. Endurskoðun matsskýrslu.

Ef framkvæmdir hefjast ekki innan tíu ára frá því að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir skal viðkomandi leyfisveitandi óska ákvörðunar Skipulagsstofnunar um hvort endurskoða þurfi að hluta eða í heild matsskýrslu framkvæmdaraðila áður en leyfi til framkvæmda er veitt.

Skipulagsstofnun getur ákveðið að endurskoða skuli matsskýrslu framkvæmdaraðila skv. 1. mgr. ef forsendur hafa breyst verulega frá því að álitið lá fyrir, svo sem vegna breytinga á náttúrufari eða landnotkun á áhrifasvæði framkvæmdarinnar, breytinga á löggjöf um umhverfismál, breytinga á alþjóðlegum skuldbindingum eða vegna tækniþróunar varðandi framkvæmdina. Verði niðurstaðan sú að endurskoða skuli matsskýrslu að hluta eða í heild skal fara með málið skv. 15.-27. gr. eftir því sem við á.

Áður en Skipulagsstofnun tekur ákvörðun um hvort endurskoða þurfi að hluta eða í heild matsskýrslu framkvæmdaraðila skal stofnunin kynna erindi leyfisveitanda með auglýsingu í dagblaði sem gefið er út á landsvísu, á vef sínum og, eftir því sem við á, fjölmiðli sem ætla má að nái til þeirra sem búa nærri framkvæmdasvæði. Skal erindið og þau gögn sem liggja til grundvallar því vera aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar. Almenningi er heimilt að gera skriflegar athugasemdir við erindið innan fjögurra vikna frá því að auglýsingin var birt. Skipulagsstofnun skal leita umsagna leyfisveitenda og annarra eftir eðli máls hverju sinni. Umsagnaraðilar skulu, innan þriggja vikna frá því að erindi Skipulagsstofnunar berst þeim, gefa álit á því hvort þeir telji þörf á að endurskoða að hluta eða í heild matsskýrsluna út frá þeim atriðum sem falla undir starfssvið þeirra og að teknu tilliti til þeirra atriða sem nefnd eru í 2. mgr. Skipulagsstofnun skal senda framkvæmdaraðila umsagnir og athugasemdir sem henni berast og gefa honum færi á að koma að athugasemdum innan tveggja vikna.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um hvort endurskoða skuli matsskýrslu í heild eða hluta skal tekin eigi síðar en fjórum vikum frá því að afstaða framkvæmdaraðila til umsagna og athugasemda liggur fyrir. Ákvörðunin skal auglýst í Lögbirtingablaði og dagblaði sem gefið er út á landsvísu innan tveggja vikna frá því að ákvörðun liggur fyrir. Í auglýsingu skal tilgreina kæruheimildir og kærufresti.

29. gr. Málsskot til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Ákvarðanir Skipulagsstofnunar um hvort framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki B og flokki C í 1. viðauka séu matsskyldar, ákvarðanir stofnunarinnar um að umhverfisáhrif fleiri en einnar matsskyldrar framkvæmdar skuli metin sameiginlega og ákvarðanir stofnunarinnar um endurskoðun matsskýrslu sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá opinberri birtingu ákvörðunarinnar. Ákvarðanir sveitarstjórna um matsskyldu framkvæmda í flokki C í 1. viðauka eru einnig kæranlegar til úrskurðarnefndarinnar. Kærufrestur er einn mánuður frá opinberri birtingu ákvörðunarinnar.

Um aðild, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Framkvæmdaraðili getur kært til úrskurðarnefndarinnar ákvörðun Skipulagsstofnunar um synjun matsáætlunar eða breytingar á henni, sbr. 17. gr., og ákvörðun stofnunarinnar um að frummatsskýrsla uppfylli ekki þær kröfur sem gerðar eru í 20. gr. eða sé ekki í samræmi við matsáætlun skv. 17. gr. Úrskurður í kærumáli samkvæmt þessari grein skal kveðinn upp eins fljótt og kostur er og jafnan innan þriggja mánaða frá því að málsgögn bárust frá stjórnvaldi en innan sex mánaða frá sama tímamarki sé mál viðamikið.

Úrskurður úrskurðarnefndarinnar er fullnaðarúrskurður á stjórnsýslustigi.

VIII. KAFLI Ýmis ákvæði.

30. gr. Leyfi til framkvæmda.

Óheimilt er að gefa út leyfi fyrir framkvæmdum sem falla undir 1. viðauka fyrr en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir eða ákvörðun um að framkvæmd sé ekki matsskyld.

Við útgáfu leyfis til framkvæmdar skv. flokki A í 1. viðauka skal leyfisveitandi kynna sér matsskýrslu framkvæmdaraðila um framkvæmdina og taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum hennar. Leyfisveitandi skal birta opinberlega ákvörðun sína um útgáfu leyfis og niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum innan tveggja vikna frá útgáfu leyfis. Í ákvörðun skal tilgreina kæruheimild og kærufrest þegar það á við.

Við útgáfu leyfis til framkvæmdar sem fellur undir flokk B og flokk C í 1. viðauka, þar sem liggur fyrir ákvörðun um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum, skal leyfisveitandi kynna sér tilkynningu framkvæmdaraðila og ákvörðun um matsskyldu og kanna hvort framkvæmdin sé í samræmi við tilkynnta framkvæmd.

Um framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar og byggingarleyfi byggingarfulltrúa vegna matsskyldra framkvæmda fer að öðru leyti samkvæmt skipulagslögum og lögum um mannvirki.

Leyfisveitendur matsskyldra framkvæmda skulu senda Skipulagsstofnun afrit af slíku leyfi eftir að leyfið hefur verið gefið út.

31. gr. Rafrænt gagnasafn um framkvæmdir í flokki C.

Skipulagsstofnun skal starfrækja rafrænt gagnasafn um framkvæmdir í flokki C í 1. viðauka. Í gagnasafnið eru skráðar ákvarðanir sveitarstjórna um matsskyldu þeirra framkvæmda og leyfi sem veitt hafa verið vegna þeirra.

Sveitarfélög hafa aðgang að gagnasafninu. Þeim ber að tilkynna Skipulagsstofnun ákvörðun sína um matsskyldu framkvæmdar og útgáfu leyfis fyrir sömu framkvæmd með því að skrá upplýsingar um það efni inn í gagnasafnið. Eftirfarandi skal að lágmarki skrá í gagnasafnið og vera varðveitt þar:

  1. Ákvörðun um matsskyldu framkvæmdar, heiti viðkomandi sveitarfélags sem tekur ákvörðunina og dagsetningu hennar.
  2. Ákvörðun um útgáfu leyfis fyrir framkvæmd, heiti viðkomandi leyfisveitanda, heiti leyfis og útgáfudag leyfisbréfs.

Skipulagsstofnun gefur út leiðbeiningar um starfrækslu rafræna gagnasafnsins, þar á meðal hvaða gögn skulu skráð og varðveitt í gagnasafninu og hvernig aðgangi sveitarfélaga að því verður háttað.

32. gr. Eftirlit með framkvæmdum.

Leyfisveitandi eða aðrir sem falið er með lögum eftirlit með framkvæmdum hafa eftirlit með því að matsskyldri framkvæmd sé hagað í samræmi við leyfi og fer um eftirlitið samkvæmt hlutaðeigandi lögum.

Berist Skipulagsstofnun vitneskja um framkvæmd sem fellur undir 1. viðauka sem hefur ekki verið tilkynnt stofnuninni til ákvörðunar um matsskyldu skal hún beina fyrirspurn til framkvæmdaraðila og leyfisveitanda um framkvæmdina. Berist sveitarfélagi vitneskja um framkvæmd sem fellur undir flokk C í 1. viðauka sem hefur ekki verið tilkynnt sveitarfélagi til ákvörðunar um matsskyldu skal það beina fyrirspurn til framkvæmdaraðila um framkvæmdina.

33. gr. Mat á umhverfisáhrifum og starfsleyfi.

Þegar um framkvæmd vegna starfsleyfisskylds atvinnureksturs er að ræða, sbr. reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun, sem jafnframt er matsskyld samkvæmt reglugerð þessari er framkvæmdaraðila heimilt, að fengnu samþykki Skipulagsstofnunar, að vinna matsáætlun í samráði við starfsleyfisveitanda þannig að á sama tíma verði unnið að frummatsskýrslu og starfsleyfi.

34. gr. Gögn framkvæmdaraðila.

Almennar reglur höfundarréttar gilda um gögn þau sem lögð eru fram samkvæmt reglugerð þessari.

Um aðgang að gögnum framkvæmdaraðila sem berast Skipulagsstofnun og sveitarstjórnum fer skv. viðeigandi löggjöf, s.s. upplýsingalögum.

35. gr. Undanþága frá frestum.

Skipulagsstofnun er í samráði við framkvæmdaraðila heimilt í viðamiklum málum að víkja frá frestum þeim sem hana varða sem mælt er fyrir um í reglugerð þessari.

36. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 20. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 með síðari breytingum.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi og um leið fellur úr gildi samnefnd reglugerð nr. 1123/2005.

 Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 3. júlí 2015. 

 F. h. r.

 Sigríður Auður Arnardóttir. 

 Steinunn Fjóla Sigurðardóttir. 

Flokkur framkvæmda
1. Landbúnaður, skógrækt og fiskeldi. A B C
1.01 Framkvæmdir til endurskipulagningar á landareignum í dreifbýli sem taka til 20 ha eða stærra landsvæðis. X
1.02 Framkvæmdir til endurskipulagningar á landareignum í dreifbýli á landsvæði allt að 20 ha. X
1.03 Framkvæmdir til að leggja óræktað land eða lítt snortið svæði undir þaulnýtinn landbúnað. X
1.04 Vatnsstjórnunarframkvæmdir vegna landbúnaðar, þ.m.t. áveitu- og framræsluframkvæmdir, sem hafa áhrif á 3 ha svæði eða stærra eða á verndarsvæðum. X
1.05 Vatnsstjórnunarframkvæmdir vegna landbúnaðar, þ.m.t. áveitu- og framræsluframkvæmdir, sem hafa áhrif á allt að 3 ha svæði. X
1.06 Nýræktun skóga á 200 ha svæði eða stærra eða á verndarsvæðum sem breytir fyrri landnotkun. Varanleg skógareyðing sem breytir fyrri landnotkun. X
1.07 Nýræktun skóga á allt að 200 ha svæði sem breytir fyrri landnotkun. X
1.08 Uppgræðsla lands á verndarsvæðum. X
1.09

Þauleldi alifugla og svína með að minnsta kosti:

i. 85.000 stæði fyrir kjúklinga eða 60.000 fyrir hænur,

ii. 3.000 stæði fyrir alisvín (yfir 30 kg) eða

iii. 900 stæði fyrir gyltur.

X
1.10 Þauleldi búfjár utan þess sem tilgreint er í tölulið 1.09. X
1.11 Þauleldi á fiski þar sem ársframleiðsla er 200 tonn eða meiri og fráveita er til sjávar eða þar sem ársframleiðsla er 20 tonn eða meiri og fráveita er í ferskvatn. X
1.12 Þauleldi á fiski þar sem ársframleiðsla er minni en 200 tonn og fráveita er til sjávar eða þar sem ársframleiðsla er minni en 20 tonn og fráveita er í ferskvatn. X
1.13 Endurheimt lands frá hafi. X
2. Námuiðnaður. A B C
2.01 Efnistaka og/eða haugsetning á landi eða úr hafsbotni þar sem áætlað er að raska 50.000 m² svæði eða stærra eða efnismagn er 150.000 m³ eða meira. X
2.02 Efnistaka og/eða haugsetning á verndarsvæðum. X
2.03 Efnistaka og/eða haugsetning á landi eða úr hafsbotni þar sem áætlað er að raska 25.000 m² svæði eða stærra eða efnismagn er 50.000 m³ eða meira. Efnistaka og/eða haugsetning þar sem fleiri en einn efnistökustaður og/eða haugsetningarstaður vegna sömu framkvæmdar og á sama svæði ná samanlagt yfir 25.000 m². X
2.04 Efnistaka og/eða haugsetning á landi eða úr hafsbotni þar sem áætlað er að raska minna en 25.000 m² svæði eða efnismagn er minna en 50.000 m³. X
2.05 Neðanjarðarnámur. X
2.06

Djúpborun (að frátalinni borun til að kanna stöðugleika jarðvegs), einkum:

i. borun á vinnsluholum og rannsóknarholum á háhitasvæðum,

ii. borun eftir jarðhita á lághitasvæðum þar sem ölkeldur, laugar eða hverir eru á yfirborði eða í næsta nágrenni,

iii. borun fyrir geymslu kjarnorkuúrgangs,

iv. vinnsla og rannsóknarboranir vegna kolvetnis utan netlaga og innan efnahagslögsögu og landgrunnsmarka,

v. borun eftir vatni þar sem gert er ráð fyrir að vinna að minnsta kosti 100 l/sek.,

vi. borun eftir vatni þar sem gert er ráð fyrir að vinna allt að 100 l/sek.

X X
2.07 Iðjuver ofanjarðar til að nema kol, jarðolíu, jarðgas og málmgrýti, svo og jarðbiksleir. X
3. Orkuiðnaður. A B C
3.01 Olíuhreinsunarstöðvar (þó ekki fyrirtæki sem framleiða eingöngu smurolíur úr hráolíu) og mannvirki fyrir kolagösun og þéttingu úr a.m.k. 500 tonnum af kolum eða jarðbiksleir á dag. X
3.02 Jarðvarmavirkjanir og önnur varmaorkuver með 50 MW uppsett varmaafl eða meira og önnur orkuver með 10 MW uppsett rafafl eða meira. X
3.03 Kjarnorkuver og aðrir kjarnakljúfar, einnig þegar slík orkuver eða kjarnakljúfar (kjarnorkuver og aðrir kjarnakljúfar teljast ekki lengur til slíkra stöðva þegar öll kjarnakleyf efni og önnur geislamenguð efni hafa verið endanlega fjarlægð af staðnum) eru rifin niður eða tekin úr notkun (nema rannsóknastöðvar með yfir 1 kW heildarhitaafköst þar sem fram fer umbreyting á kjarnakleyfum efnum og tímgunarefnum). X
3.04 Stöðvar þar sem geisluð kjarnakleyf efni eru endurunnin. Stöðvar til framleiðslu eða auðgunar kjarnakleyfra efna, til vinnslu geislaðra kjarnakleyfra efna eða mjög geislavirks úrgangs, til endanlegrar geymslu á geisluðum kjarnakleyfum efnum, eingöngu til endanlegrar geymslu á geislavirkum úrgangi eða eingöngu til geymslu (til meira en tíu ára) á geisluðum kjarnakleyfum efnum eða geislavirkum úrgangi annars staðar en á framleiðslustað. X
3.05 Stöðvar til vinnslu og geymslu á geislavirkum úrgangi, utan þeirra sem tilgreindar eru í tölulið 3.04. X
3.06 Vinnsla á meira en 500 tonnum á dag af jarðolíu og meira en 500.000 m³ af jarðgasi á dag. X
3.07 Iðjuver til framleiðslu á rafmagni, gufu og heitu vatni og varmavinnsla úr jarðhitasvæðum sem nemur 2.500 kW hráafli eða meira. X
3.08 Loftlínur til flutnings á raforku með 66 kV spennu eða hærri. Sæstrengir til flutnings á raforku með 132 kV spennu eða hærri og eru 20 km eða lengri. X
3.09 Flutningskerfi gass, gufu eða heits vatns sem tengist iðnaðarframkvæmdum. X
3.10 Leiðslur sem eru 1 km eða lengri og 50 sm í þvermál eða meira til flutnings á gasi eða vökvum. X
3.11 Leiðslur sem eru 1 km eða lengri og 50 sm í þvermál eða meira til flutnings á koltvísýringi (CO2) til geymslu í jörðu, ásamt þrýstiaukadælu. X
3.12 Leiðslur til flutnings á olíu og gasi og til flutnings á koltvísýringi (CO2) til geymslu í jörðu á verndarsvæðum. X
3.13 Leiðslur til flutnings á olíu og gasi og til flutnings á koltvísýringi (CO2) til geymslu í jörðu utan verndarsvæða. X
3.14 Geymslustöðvar fyrir jarðolíu, efni unnin úr jarðolíu eða efnavörur með 50.000 m³ geymslugetu eða meira. X
3.15 Geymsla á jarðgasi ofanjarðar á verndarsvæðum. X
3.16 Geymsla á jarðgasi ofanjarðar, utan verndarsvæða. X
3.17 Neðanjarðargeymsla á eldfimu gasi á verndarsvæðum. X
3.18 Neðanjarðargeymsla á eldfimu gasi, utan verndarsvæða. X
3.19 Geymsla jarðefnaeldsneytis ofanjarðar á verndarsvæðum. X
3.20 Geymsla jarðefnaeldsneytis ofanjarðar, utan verndarsvæða. X
3.21 Gerð taflna úr kolum og brúnkolum. X
3.22 Vatnsorkuver með uppsett rafafl 200 kW eða meira. X
3.23 Vatnsorkuver með uppsett rafafl allt að 200 kW. X
3.24 Stöðvar sem nýta vindafl til raforkuframleiðslu (vindbú) með 2 MW uppsett rafafl eða meira. X
3.25 Stöðvar sem nýta vindafl til raforkuframleiðslu (vindbú) með minna en 2 MW rafafl. X
3.26 Geymslusvæði fyrir koltvísýring (CO2) í jörðu. X
3.27 Mannvirki, sem hafa þann tilgang að fanga koltvísýring (CO2) til geymslu í jörðu, frá verksmiðjum eða iðjuverum sem heyra undir flokk A eða frá verksmiðjum eða iðjuverum þar sem árleg heildarföngun koltvísýrings nemur 1,5 megatonnum eða meira. X
3.28 Mannvirki, sem hafa þann tilgang að fanga koltvísýring (CO2) til geymslu í jörðu, frá verksmiðjum eða iðjuverum sem falla ekki í flokk A samkvæmt tölulið 3.27. X
4. Framleiðsla og vinnsla málma. A B C
4.01 Verksmiðjur þar sem fram fer frumbræðsla á steypujárni og stáli. Framleiðsla hrámálms, sem inniheldur ekki járn úr grýti, kirni eða afleiddu hráefni, fer fram með málmvinnsluaðferðum, efnafræðilegum aðferðum eða rafgreiningaraðferðum. X
4.02 Stöðvar til framleiðslu á 20 tonnum á dag eða meira af steypujárni og stáli (fyrsta og önnur bræðsla) ásamt samfelldri steypingu. X
4.03 Stöðvar til framleiðslu allt að 20 tonnum á dag af steypujárni og stáli (fyrsta og önnur bræðsla) ásamt samfelldri steypingu. X
4.04

Stöðvar til vinnslu á járnkenndum málmum:

i. heitvölsunarstöðvar,

ii. smiðjur með hömrun,

iii. varnarhúðun með bræddum málmum.

X
4.05 Málmsteypusmiðjur fyrir járnkennda málma. X
4.06 Stöðvar til bræðslu, einnig málmblendis, á járnlausum málmum öðrum en góðmálmum, einnig endurheimtum vörum (hreinsun, steypa í steypusmiðjum o.s.frv.). X
4.07 Stöðvar þar sem unnið er að yfirborðsmeðferð málma og plastefna með rafgreiningar- og efnaaðferðum. X
4.08 Framleiðsla og samsetning vélknúinna ökutækja og framleiðsla á hreyflum í slík ökutæki. X
4.09 Skipasmíðastöðvar. X
4.10 Stöðvar sem eru 1 ha að stærð eða meira til smíða og viðgerða á loftförum. X
4.11 Stöðvar sem eru allt að 1 ha að stærð til smíða og viðgerða á loftförum. X
4.12 Framleiðsla á járnbrautarbúnaði. X
4.13 Málmmótun með sprengiefnum. X
4.14 Stöðvar til að brenna og glæða málmgrýti. X
5. Steinefnaiðnaður. A B C
5.01 Koxofnar (þurreiming kola). X
5.02 Sementsverksmiðjur. X
5.03 Stöðvar til framleiðslu á gleri og trefjaefni. X
5.04 Stöðvar til að bræða steinefni og framleiða steinefnatrefjar. X
5.05 Framleiðsla á keramikvörum með brennslu, svo sem þakflísum, múrsteinum, eldföstum múrsteinum, flísum, leirmunum eða postulíni, 75 tonn á dag eða meira eða rúmtak ofns er 4 m³ eða meira. X
5.06 Framleiðsla á keramikvörum með brennslu, svo sem þakflísum, múrsteinum, eldföstum múrsteinum, flísum, leirmunum eða postulíni, allt að 75 tonn á dag eða rúmtak ofns er undir 4 m³. X
6. Efnaiðnaður. A B C
6.01

Efnaverksmiðjur sem framleiða:

i. lífrænt hráefni,

ii. ólífrænt hráefni,

iii. áburð sem inniheldur fosfór, köfnunarefni eða kalíum (einnig áburðarblöndur),

iv. grunnvörur fyrir plöntuvarnarefni og lífeyða,

v. grunnlyfjavörur með efnafræðilegum og líffræðilegum aðferðum,

vi. sprengiefni.

X
6.02 Meðferð á hálfunnum vörum og framleiðsla kemískra efna. X
6.03 Framleiðsla á varnarefnum og lyfjum, málningu og lakki, gúmmílíki og peroxíðum. X
6.04 Geymslustöðvar fyrir jarðolíu, efni unnin úr jarðolíu og önnur kemísk efni á verndarsvæðum. X
6.05 Geymslustöðvar fyrir jarðolíu, efni unnin úr jarðolíu og önnur kemísk efni utan verndarsvæða. X
7. Matvælaiðnaður. A B C
7.01 Vinnsla á olíu og fitu úr jurtum og dýrum á verndarsvæðum. X
7.02 Vinnsla á olíu og fitu úr jurtum og dýrum utan verndarsvæða. X
7.03 Pökkun og niðursuða á jurta- og dýraafurðum 75 tonn á dag eða meira á verndarsvæðum. X
7.04 Pökkun og niðursuða á jurta- og dýraafurðum sem ekki fellur í flokk B samkvæmt tölulið 7.03. X
7.05 Framleiðsla á mjólkurvörum 200 tonn á dag eða meira á verndarsvæðum. X
7.06 Framleiðsla á mjólkurvörum sem fellur ekki í flokk B samkvæmt tölulið 7.05. X
7.07 Öl- og maltgerð á verndarsvæðum. X
7.08 Öl- og maltgerð utan verndarsvæða. X
7.09 Framleiðsla á sætindum og sírópi á verndarsvæðum. X
7.10 Framleiðsla á sætindum og sírópi utan verndarsvæða. X
7.11 Sláturhús á verndarsvæðum. X
7.12 Sláturhús utan verndarsvæða. X
7.13 Stöðvar til sterkjuframleiðslu á verndarsvæðum. X
7.14 Stöðvar til sterkjuframleiðslu utan verndarsvæða. X
7.15 Fiskimjöls- og lýsisverksmiðjur í þéttbýli með framleiðslugetu 1.000 tonn á sólarhring eða meiri. X
7.16 Fiskimjöls- og lýsisverksmiðjur á verndarsvæðum; fiskimjöls- og lýsisverksmiðjur í þéttbýli með framleiðslugetu 500 tonn á sólarhring eða meiri. X
7.17 Fiskimjöls- og lýsisverksmiðjur utan þeirra sem falla í flokk A samkvæmt tölulið 7.15 og flokk B samkvæmt tölulið 7.16. X
7.18 Sykurverksmiðjur á verndarsvæðum. X
7.19 Sykurverksmiðjur utan verndarsvæða. X
  8. Textíl-, leður-, timbur- og pappírsiðnaður  A  B  C 
 8.01

 Verksmiðjur:

 i. sem framleiða pappírsdeig úr timbri eða svipuðum trefjaefnum,

 ii. sem framleiða pappír og pappa og geta framleitt meira en 200 tonn á dag.

 X   
 8.02  Verksmiðjur til framleiðslu á pappír og pappa utan þeirra sem tilgreind eru í flokki A samkvæmt tölulið 8.01.   X  
 8.03  Stöðvar þar sem fram fer formeðferð (t.d. þvottur, bleiking, mersivinna) eða litun trefja eða textílefna.   X  
 8.04  Stöðvar þar sem fram fer sútun á húðum og skinnum.   X  
 8.05  Stöðvar þar sem fram fer vinnsla og framleiðsla á sellulósa.   X  
  9. Gúmmíiðnaður  A  B  C 
 9.01  Framleiðsla og meðferð á vörum úr gúmmílíki.   X  
  10. Grunnvirki  A  B  C 
 10.01  Mannvirkjagerð vegna þróunar iðnaðarsvæðis sem tekur til 50 ha eða stærra svæðis.   X  
 10.02  Mannvirkjagerð vegna þróunar iðnaðarsvæðis sem tekur til allt að 50 ha svæðis.    X
 10.03  Mannvirkjagerð vegna þróunar þéttbýlis, þ.m.t. verslunarmiðstöðvar, bílastæðasvæði, íþróttaleikvangar, háskólar, sjúkrahús og aðrar sambærilegar framkvæmdir.   X  
 10.04  Bygging samgöngumiðstöðva fyrir margþátta samgöngustarfsemi.   X  
 10.05  Flugvellir með 2.100 m langa meginflugbraut eða lengri.  X   
 10.06  Flugvellir með styttri en 2.100 m langa meginflugbraut.   X  
 10.07  Nýir tveggja akreina vegir með framúrakstursrein og vegir með fjórar akreinar eða fleiri.  X   
 10.08  Nýir vegir sem eru 10 km eða lengri. Enduruppbygging vega þar sem samanlögð nýlagning utan eldra vegsvæðis eða breikkun úr tveimur akreinum í fjórar er a.m.k. 10 km að lengd.  X   
 10.09  Nýir tveggja akreina vegir styttri en 10 km í þéttbýli. Nýir vegir utan þéttbýlis á verndarsvæðum. Enduruppbygging vega utan þéttbýlis á verndarsvæðum.   X  
 10.10  Nýir vegir og endurbygging vega sem ekki eru tilgreindir í tölulið 10.07, 10.08 eða 10.09.    X
 10.11  Hafnir (viðskiptahafnir, skipgengar vatnaleiðir og innhafnir) sem skip stærri en 1.350 tonn geta siglt um.  X   
 10.12  Viðlegubryggjur (að undanskildum ferjulægjum) sem tengdar eru við land og eru utan hafna, þar sem skip stærri en 1.350 tonn geta lagst að til losunar og lestunar.  X   
 10.13  Hafnir og viðlegubryggjur utan þéttbýlis á verndarsvæðum.   X  
 10.14  Aðrar hafnir og viðlegubryggjur en tilgreindar eru í flokki A samkvæmt tölulið 10.12 eða flokki B samkvæmt tölulið 10.13.    X
 10.15  Byggingarframkvæmdir við skipgengar vatnaleiðir og gerð skipaskurða og fráveituskurða.   X  
 10.16  Stíflur og önnur mannvirki eða breytingar á árfarvegi til að hemja og/eða miðla vatni þar sem 3 km² lands eða meira fara undir vatn eða rúmtak vatns er meira en 10 milljónir m³.  X   
 10.17  Stíflur og önnur mannvirki eða breytingar á árfarvegi til að hemja og/eða miðla vatni á verndarsvæðum, utan þeirra sem tilgreind eru í tölulið 10.16.   X  
 10.18  Stíflur og önnur mannvirki eða breytingar á árfarvegi til að hemja og/eða miðla vatni á verndarsvæðum, utan þeirra sem tilgreind eru í tölulið 10.16 og 10.17.    X
 10.19  Lagning járnbrauta um langar vegalengdir.  X   
 10.20  Járnbrautir, sporvagnar, lestir í lofti og neðanjarðar, svifbrautir og ámóta brautir af sérstakri gerð sem notaðar eru eingöngu eða aðallega til fólksflutninga.   X  
 10.21  Lagning áveitu- eða vatnsstokka um langan veg; loftlínur til flutnings raforku á verndarsvæðum; lagning niðurgrafinna strengja/lagna 10 km eða lengri utan þéttbýlis eða óháð vegalengd á verndarsvæðum. Lagning strengja/lagna í vatni/sjó 10 km eða lengri eða óháð vegalengd á verndarsvæðum.   X  
 10.22  Mannvirki til að verjast rofi á strandlengjum á verndarsvæðum, t.d. með stíflugörðum, brimbrjótum, hafnargörðum og öðrum varnarmannvirkjum gegn ágangi sjávar. Landfyllingar þar sem áætluð uppfylling er 5 ha eða stærri. Undanskilið er viðhald og endurbygging framangreindra mannvirkja.   X  
 10.23  Mannvirki til að verjast rofi á strandlengjum utan verndarsvæða, t.d. með stíflugörðum, brimbrjótum, hafnargörðum og öðrum varnarmannvirkjum gegn ágangi sjávar. Landfyllingar þar sem áætluð uppfylling er allt að 5 ha. Undanskilið er viðhald og endurbygging framangreindra mannvirkja.    X
 10.24  Vinnsla grunnvatns eða íveita vatns í grunnvatn með 300 l/sek. meðalrennsli eða meira á ári.  X   
 10.25  Vinnsla grunnvatns eða íveita vatns í grunnvatn sem ekki fellur undir flokk A, tölulið 10.24.   X  
 10.26  Mannvirkjagerð þegar fyrirhugað er að veita meira en 1.000 l/sek. af vatni á milli vatnasviða. Flutningur á drykkjarvatni í leiðslum er undanskilinn.  X   
 10.27  Mannvirkjagerð þegar fyrirhugað er að veita vatni á milli vatnasviða sem ekki fellur undir flokk A, tölulið 10.26. Flutningur á drykkjarvatni í leiðslum er undanskilinn.   X  
  11. Aðrar framkvæmdir  A  B  C 
 11.01  Kappaksturs- og reynsluakstursbrautir fyrir vélknúin ökutæki á svæðum sem skilgreind eru sem slík í skipulagi.   X  
 11.02  Förgunarstöðvar þar sem spilliefni eru brennd, meðhöndluð með efnum eða urðuð. Aðrar förgunarstöðvar úrgangs sem meðhöndla meira en 500 tonn af úrgangi á ári.  X   
 11.03  Förgunarstöðvar þar sem úrgangur er brenndur, meðhöndlaður með efnum eða urðaður og ekki eru tilgreindar í flokki A, tölulið 11.02.   X  
 11.04  Skolphreinsivirki frá íbúðarbyggð eða iðnaði, þ.m.t. stöðvum með þaulnýtnum landbúnaði með afkastagetu sem svarar til 50.000 persónueininga eða meira.  X   
 11.05  Skolphreinsivirki frá íbúðarbyggð eða iðnaði, þ.m.t. stöðvum með þaulnýtnum landbúnaði með afkastagetu sem svarar til 100 persónueininga eða meira á verndarsvæðum, svæðum á náttúruminjaskrá eða þar sem losað er í viðkvæman viðtaka, að undanskildum þeim er tilgreind eru í flokki A, tölulið 11.04.   X  
 11.06  Skolphreinsivirki frá íbúðarbyggð eða iðnaði, þ.m.t. stöðvum með þaulnýtnum landbúnaði utan verndarsvæða, sem ekki eru tilgreind í flokki A, tölulið 11.04, eða flokki B, tölulið 11.05.    X
 11.07  Förgunarstöðvar fyrir seyru á verndarsvæðum.   X  
 11.08  Förgunarstöðvar fyrir seyru utan verndarsvæða.    X
 11.09  Geymsla brotajárns, þ.m.t. bílar, sem er að magni 1.500 tonn á ári eða meira.   X  
 11.10  Geymsla brotajárns, þ.m.t. bílar, sem er að magni allt að 1.500 tonnum á ári.    X
 11.11  Prófunaraðstaða fyrir vélar, hverfla eða hvarfrými.   X  
 11.12  Stöðvar sem framleiða steinefnatrefjar.   X  
 11.13  Stöðvar til að endurvinna sprengiefni eða eyða því.   X  
 11.14  Förgun sláturúrgangs.   X  
 11.15  Endurnýting úrgangs þar sem meðhöndluð eru meira en 500 tonn af úrgangi á ári.   X  
 11.16  Varnargarðar til varnar ofanflóðum í þéttbýli.   X  
  12. Ferðalög og tómstundir  A  B  C 
 12.01  Skíðasvæði, skíðalyftur og kláfar og tengdar framkvæmdir á skíðasvæðum á verndarsvæðum og jöklum.   X  
 12.02  Skíðasvæði, skíðalyftur og kláfar á skíðasvæðum og tengdar framkvæmdir utan verndarsvæða og jökla.    X
 12.03  Smábátahafnir sem hafa 150 bátalægi eða fleiri.   X  
 12.04  Smábátahafnir með allt að 150 bátalægi.    X
 12.05  Þjónustumiðstöðvar fyrir ferðamenn á hálendi og á verndarsvæðum á láglendi utan þéttbýlis, orlofsþorp, hótel og tengdar framkvæmdir utan þéttbýlis.   X  
 12.06  Varanleg tjaldsvæði og hjólhýsasvæði sem eru 10 ha eða stærri.   X  
 12.07  Varanleg tjaldsvæði og hjólhýsasvæði allt að 10 ha.    X
 12.08  Skemmtigarðar sem ná yfir 2 ha svæði eða meira.   X  
 12.09  Skemmtigarðar sem ná yfir allt að 2 ha svæði.    X
 12.10  Golfvellir.   X  
  13. Breytingar og viðbætur við framkvæmdir  A  B  C 
 13.01  Allar breytingar eða viðbætur við framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki A þegar breytingin eða viðbótin sjálf fer yfir þau viðmið sem flokkur A setur.  X   
 13.02  Allar breytingar eða viðbætur við framkvæmdir samkvæmt flokki A, aðrar en tilgreindar eru í tölulið 13.01, og flokki B sem hafa þegar verið leyfðar, framkvæmdar eða eru í framkvæmd og kunna að hafa umtalsverð umhverfisáhrif.   X  
 13.03  Allar breytingar eða viðbætur við framkvæmdir sem eru í flokki C sem hafa þegar verið leyfðar, framkvæmdar eða eru í framkvæmd og kunna að hafa umtalsverð umhverfisáhrif.    X
 13.04  Framkvæmdir samkvæmt flokki A sem ráðist er í eingöngu eða aðallega til að þróa og prófa nýjar aðferðir eða vörur en eru ekki notaðar lengur en tvö ár.   X  

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.