Fara beint í efnið
Auðkenni Ekki láta rafræna þig

Rafræn skilríki eru persónuskilríki sem notuð eru í rafrænum heimi. Þau létta okkur lífið og eru einföld í notkun. Þau gera þér kleift að stunda bankaviðskipti, undirrita mikilvæg gögn eins og lánasamninga, fá aðgang að heilbrigðisþjónustu á vefnum og margt fleira. Það er mikilvægt að þú notir rafrænu skilríkin þín á öruggan hátt og sért alveg viss þegar þú slærð inn PIN-númerið þitt.

1. Lestu vel beiðnir um rafræna auðkenningu

Auðkenni Lestu vel beiðnir um rafræna auðkenningu

Athugaðu að upplýsingarnar sem koma í símann þinn séu í samræmi við upplýsingarnar sem þjónustuveitandi gefur upp á innskráningarsíðunni. Margir þjónustuveitendur nota tölur til samanburðar með texta. Skoðaðu vel frá hvaða aðila beiðnin kemur og í hvaða tilgangi.

2. Ekki samþykkja innskráningu sem þú kannast ekki við

Auðkenni Ekki samþykkja innskráningu sem þú kannast ekki við

Þú ættir alltaf að eiga upphafið að innskráningunni með rafrænum skilríkjum. Ef innskráningarbeiðni sem þú kannast ekki við kemur í símann þinn þá skaltu ekki samþykkja beiðnina.

3. Hættu frekar við ef þú ert ekki viss

Auðkenni Hættu frekar við ef þú ert ekki viss

Það er mjög mikilvægt að vera alveg viss áður en þú slærð inn PIN-númerið þitt. Ef þú ert í einhverjum vafa þá skaltu hætta við. Það er alltaf hægt að byrja aftur.

Ef þú telur þig hafa lent í rafráni þá skaltu:

  1. Hafa tafarlaust samband við þjónustuveitanda t.d. fjármálafyrirtæki

  2. Tilkynna atvikið til lögreglu: abendingar@lrh.is

  3. Tilkynna atvikið til Cert-IS

Viltu vita meira um netöryggi?
Landsbankinn
Íslandsbanki
Arion banki
Nýlegt dæmi um sviksamleg skilaboð

Þjónustuaðili

Auðkenni