Fara beint í efnið

Köfunarréttindi

Öllum köfurum sem stunda köfun á íslensku yfirráðasvæði og landgrunni Íslands og frá skipi skráðu á Íslandi, er skylt að standast menntunar og hæfniskröfur frá viðurkenndum aðilum til að fá útgefið réttindaskírteini frá Samgöngustofu.

  • Atvinnuköfun eru allar þær athafnir sem eru liður í atvinnustarfsemi eða þjónustustarfsemi kafara og annarra aðila.

  • Sé köfunin ekki liður í atvinnu- eða þjónustustarfsemi telst hún áhugaköfun. 

Ef athöfnin er hluti skipulagðrar þjónustustarfsemi til verndar almannahagsmunum telst köfunin einnig atvinnuköfun. Dæmi má nefna:

  • lögreglu-og slökkvuliðsmenn sem stunda köfun við vinnu sína

  • köfun til sýnatöku í rannsóknarskyni

Viðurkenning réttinda 

Nám til köfunarréttinda sem uppfyllir tilmæli European Diving Technology Committee (EDTC), er viðurkennt af Samgöngustofu sem jafngilt íslensku námi, að undangenginni athugun á hæfni. 

Ísland er ekki aðili að EDTC en þó þarf námskrá að uppfylla tilmæli sem EDTC-stofnunin gefur út til að vera samþykkt af Samgöngustofu. Íslenskt nám ætti því að standast kröfur erlendra stofnana um inntak, áherslur og gæði náms, og erlendum stjórnvöldum innan ESB er skylt að viðurkenna nám sem er jafngilt þarlendu námi, í samræmi við EES-samninginn. Gera má ráð fyrir að handhafar íslenskra atvinnukafaraskírteina gætu þurft að gangast undir einhverjar prófanir til að sannreyna hæfni þeirra í atvinnuköfun. 

 

Laga og reglugerðarstoð 

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa