Handbók vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Þjónustuaðili:
Leiðbeiningar vegna stöðlunar á stöðu- og framvinduprófum Matsferils
Hér má nálgast pdf útgáfu af leiðbeiningunum.
Matssvið Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
17. mars – 11. apríl 2025
Stöðu- og framvindupróf í lesskilningi
Lesskilningur er mikilvæg undirstöðufærni í námi. Góður lesskilningur er forsenda þess að hægt sé að skilja og tileinka sér efni texta á meðan slakur lesskilningur getur haft víðtæk áhrif á framvindu og frammistöðu í námi. Góður lesskilningur felst í skilningi einstakra orða, setninga og málsgreina, svo og skilningi stærri heilda eins og efnisgreina eða kafla sem síðan þarf að fella saman við eigin hugmyndir, þekkingu og sjónarmið. Góður lesskilningur er byggður á góðum málskilningi sem aftur hvílir t.d. á góðum hugtakaskilningi og fjölbreytilegum orðaforða sem þarf að fá að vaxa og dafna í takt við hækkandi aldur nemenda og síauknar kröfur í námi. Góður lesskilningur er einnig háður góðri lestrar- eða umskráningarfærni og því mikilvægt að hugað sé að báðum þáttum læsis í lestrarkennslu.
Með því að leggja stöðu- og framvinduprófin reglulega fyrir fást upplýsingar um stöðu og þróun lesskilnings nemenda. Niðurstöður þeirra gefa vísbendingar um það að hve miklu leyti nemandinn er fær um að nýta sér lestur og málskilning sinn til að tileinka sér almennt innihald texta námsefnis og að njóta ávinningsins af lestri í fjölbreyttum tilgangi.
Gerð inntakstöflu er ávallt hluti af þróun matstækis. Eitt meginhlutverk hennar er að tryggja að prófið endurspegli atriði sem eru sanngjörn og dæmigerð fyrir þá hæfni eða kunnáttu sem því er ætlað að mæla. Gerð inntakstöflu styður jafnframt við réttmæti prófsins og tryggir jafnvægi á milli tegunda og þyngdar prófatriða. Inntakstaflan er því í raun uppskriftin af stöðu- og framvinduprófinu og lýsir hún vægi undirflokka í hverri prófútgáfu fyrir sig. Prófútgáfurnar eru sjö eða ein í hverjum árgangi í 4.-10. bekk. Inntakstaflan gerir það kleift að bera saman niðurstöður milli ára og þróun yfir lengri tíma.
Þegar inntakstaflan er skoðuð sést að hlutfall prófatriða í hverjum flokki er mismunandi. Þannig er hlutfall prófatriða sem reyna á bókstaflegan skilning hærra hjá yngri börnunum á meðan hlutfall prófatriða sem reyna á flóknari hæfni er hærra hjá þeim eldri. Er það í samræmi við aldur og þroska nemenda og kennsluna sem þeir eiga að hafa fengið í samræmi við aðalnámskrá.
Inntakstafla fyrir stöðu- og framvindupróf í lesskilningi.



