Fara beint í efnið

4. júlí 2024

Breytingar á lögum um útlendinga

Styttri gildistími dvalarleyfa á grundvelli verndar og biðtími eftir fjölskyldusameiningu

Alþingi

Tekið hafa gildi breytingar á lögum um útlendinga sem samþykktar voru á Alþingi þann 14. júní. Breytingarnar varða meðal annars málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd og réttaráhrif alþjóðlegrar verndar. Unnið er að því að uppfæra vef Útlendingastofnunar til samræmis við breytingarnar en helstu atriði þeirra eru talin upp hér að neðan.

Gildistími dvalarleyfa

Breytingin gildir um dvalarleyfi sem veitt eru á þessum grundvelli eftir gildistöku laganna, það er frá og með 4. júlí 2024.

Fjölskyldusameiningar við handhafa viðbótarverndar

Aðstandendur þeirra sem fá veitta viðbótarvernd mega ekki leggja fram umsókn um fjölskyldusameiningu fyrr en dvalarleyfi á grundvelli viðbótarverndar hefur verið endurnýjað. Frá þessu eru eftirfarandi undanþágur:

  • Ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða.

  • Ef sá sem rétturinn byggir á hefur haft hér dvalarleyfi í eitt ár, hefur verið virkur þátttakandi á vinnumarkaði í átta mánuði, uppfyllir skilyrði um trygga framfærslu, uppfyllir skilyrði um íslenskukunnáttu og hefur til umráða íbúðarhúsnæði fyrir þá aðstandendur sem hyggjast koma hingað.

Breytingin gildir um meðferð umsókna um fjölskyldusameiningar sem lagðar eru fram eftir gildistöku laganna, það er frá og með 4. júlí 2024.

Fjölskyldusameiningar við handhafa mannúðarleyfa

Aðstandendur þeirra sem fá veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum mega ekki leggja fram umsókn um fjölskyldusameiningu fyrr en dvalarleyfi af mannúðarástæðum hefur verið endurnýjað tvisvar sinnum. Frá þessu er eftirfarandi undanþága:

  • Ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða.

Breytingin gildir um meðferð umsókna um fjölskyldusameiningar sem lagðar eru fram eftir gildistöku laganna, það er frá og með 4. júlí 2024.

Aðgengi að efnismeðferðar umsókna um vernd

Með brottfalli 2. málsgreinar 36. greinar þarf ekki lengur að taka afstöðu til sérstakra ástæðna og sérstakra tengsla við málsmeðferð umsókna um vernd:

  • sem íslensk stjórnvöld bera ekki ábyrgð á samkvæmt reglum Dyflinnarsamstarfsins,

  • frá einstaklingum sem hafa þegar fengið vernd í öðru ríki eða

  • frá einstaklingum sem geta öðlast rétt til dvalar í öruggu ríki.

Þá fellur einnig úr gildi ákvæði um að taka skuli umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram.

Breytingin gildir um meðferð umsókna um vernd sem lagðar eru fram eftir gildistöku laganna, það er frá og með 4. júlí 2024.

Aðrar breytingar

  • Kjörbörnum hefur verið bætt við upptalningu þeirra sem eiga rétt á að fá vernd á grundvelli fjölskyldusameiningar.

  • Tekinn er af vafi um að bráðabirgðadvalarleyfi skuli ekki veitt hafi Útlendingastofnun synjað umsókn um alþjóðlega vernd.

  • Sú breyting er gerð á skipun kærunefndar útlendingamála að nú verða nefndarmenn ekki í hlutastarfi heldur verða þrír nefndarmenn í fullu starfi. Formanni og varaformanni er einnig gert heimilt að úrskurða einir í fleiri málum.