Fara beint í efnið

Má sá sem situr í óskiptu búi draga útfararkostnað þess sem lést á undan frá á erfðafjárskýrslu?

Nei. Ef verið er að skipta dánarbúi hjóna eftir lát beggja og langlífari maki sat í óskiptu búi má aðeins tilgreina til frádráttar skuldbindingar á dánardegi. Slíkur frádráttarliður á þannig aðeins rétt á sér ef við andlát þess langlífara væri ógreidd krafa vegna útfarar þess sem lést á undan.

Hér má finna nánari upplýsingar um erfðafjárskýrslur og erfðafjárskatt.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?