Fara beint í efnið

Hvað getur komið í veg fyrir setu í óskiptu búi?

  • Aðeins fólk í hjónabandi á rétt til setu í óskiptu búi.  Sambúðarmaki á aldrei rétt til setu í óskiptu búi.  

  • Hafi hjón gert með sér kaupmála og eignir hins láta séreignir þarf að koma fram í kaupmálanum að þær verði hjúskapareignir að öðru hjóna látnu svo sýslumaður geti veitt búsetuleyfi. Leyfi er ekki veitt ef makinn er gjaldþrota.

  • Ef maki er sviptur fjárræði þarf samþykki sýslumanns fyrir leyfi til setu í óskiptu búi. 

Hér má finna nánari upplýsingar um setu í óskiptu búi.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?