Mannauðstorg ríkisins: Starfsumhverfi ríkisins
Siðareglur og viðmið um góða starfshætti
Almennar siðareglur starfsmanna ríkisins
Fjármála- og efnahagsráðherra gefur út siðareglur fyrir starfsmenn ríkisins.
Eftirfarandi eru almennar leiðbeiningar og viðmið sem starfsfólki ríkisins ber að fara eftir í störfum sínum og byggja á skráðum og óskráðum réttarreglum um störf og starfshætti ríkisstarfsmanna þar á meðal starfsmannalögum, stjórnsýslulögum, upplýsingalögum og lögum um opinber fjármál. Upptalningin er ekki tæmandi og kemur ekki í stað lagareglna sem að öðru leyti gilda um störf og starfshætti ríkisstarfsmanna.
Ríkisstarfsmenn starfa í þjónustu ríkisins og ber fyrst og fremst að virða stjórnarskrá, lög og grunnreglur lýðræðis og mannréttinda. Einnig skal starfsfólk ríkisins leggja sig fram um að sinna starfi sínu af alúð, trúmennsku, heiðarleika og ábyrgð.
Starfsfólk ríkisins skal leitast við að haga orðum sínum og athöfnum í samræmi við eftirfarandi leiðbeiningar:
Starfsfólk ríkisins gætir þess að fara vel með það vald sem því er falið og beitir því í þágu almannahagsmuna, gætir sanngirni og meðalhófs en nýtir það ekki í eigin þágu
Við meðferð valds, þar sem velja þarf á milli einstaklinga, til dæmis við ráðningu í störf, úthlutun styrkja eða annarra gæða eða gerð samninga um verktöku, skal starfsfólk ætíð byggja ákvörðun sína á málefnalegum sjónarmiðum, svo sem verðleikum og hæfni. Óheimilt er að mismuna málsaðilum á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða, svo sem kynferðis, kynþáttar, kynhneigðar eða samfélagslegrar stöðu að öðru leyti
Starfsfólk ríkisins gætir þess að persónulegir og fjárhagslegir hagsmunir þess, fjölskyldu eða vina fari ekki í bága við starfsskyldur. Þannig skal starfsmaður ekki taka þátt í ákvörðunum ef viðkomandi:
tengist málsaðilum fjölskylduböndum
á aðild að málinu
er vinur eða fyrrverandi maki málsaðila
Starfsfólk ríkisins skal ekki þiggja eða sækjast eftir gjöfum eða fjármunum frá einstaklingum, fyrirtækjum eða öðrum sem á einn eða annan hátt tengjast starfi þess
Starfsfólk ríkisins skal stuðla að því að upplýsingar um ákvarðanir og starfsemi þess stjórnvalds, stofnunar eða fyrirtækis sem það starfar hjá séu aðgengilegar almenningi enda sé ekki um upplýsingar að ræða sem leynt þurfa að fara samkvæmt lögum
Starfsfólk ríkisins gætir þagmælsku um atriði er það fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara. Því er óheimilt að afla sér trúnaðarupplýsinga í starfi sínu sem ekki hafa þýðingu fyrir starfið. Starfsfólk skal ekki hagnýta sér upplýsingar sem það hefur fengið í starfi sínu og ekki hafa verið kynntar eða gerðar almennar, til þess að skapa sjálfum sér eða öðrum ávinning, þ. á m. fjárhagslegan, enda þótt ekki sé um trúnaðarupplýsingar að ræða. Starfsfólk gætir þagnarskyldu sinnar þótt látið sé af störfum
Starfsfólki ríkisins ber að fara vel með almannafé og gæta þess að það sé ekki notað á annan hátt en ætlast er til lögum samkvæmt
Starfsfólk ríkisins sem verður vart við spillingu, ólögmæta eða ótilhlýðilega háttsemi, skal koma upplýsingum um slíka háttsemi til réttra aðila. Til réttra aðila geta meðal annars talist stjórnendur stofnunar, hlutaðeigandi fagráðuneyti og eftir atvikum Ríkisendurskoðun eða lögregla. Starfsfólk sem í góðri trú greinir á réttmætan hátt frá upplýsingum samkvæmt þessum lið, skal á engan hátt gjalda þess. Sjá nánar í lögum um vernd uppljóstrara
Leiðbeiningar sem hér eru settar fram verða jafnan að taka mið af aðstæðum starfsfólks á hverju sviði stjórnsýslunnar. Því er stjórnendum falið að meta sjálfstætt hvenær og í hvaða tilfellum rétt sé að setja frekari viðmið í formi leiðbeinandi reglna eða sérstakra siðareglna. Slíkar reglur skulu fela í sér nánari útlistun á því hvernig æskilegt sé að starfsfólk bregðist við þegar siðferðileg álitamál koma upp í starfinu. Jafnframt er í sama tilgangi lagt til að stjórnendur yfirfari og endurskoði sérstaklega þau viðmið eða siðareglur sem settar hafa verið.
Stjórnendur ríkisstofnana skulu tryggja að þessar leiðbeiningar séu ávallt aðgengilegar starfsfólki og kynntar nýju starfsfólki sérstaklega. Einnig ber að kynna almennar siðareglur starfsmanna ríkisins.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Mannauðstorg ríkisins
Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðssvið Fjársýslunnar.