Sveitarstjórnarkosningar 2026
Opnað fyrir rafræna söfnun meðmæla
10. mars 2026
Landskjörstjórn hefur opnað fyrir rafræna söfnun meðmæla fyrir sveitarstjórnarkosningarnar

Það er yfirkjörstjórn hvers sveitarfélags sem tekur ákvörðun um hvort heimilt verði að safna rafrænum meðmælum en nú þegar hafa 33 sveitarfélög opnað á möguleikann.
„Rafræn meðmælendasöfnun einfaldar framboðum, meðmælendum og yfirkjörstjórnum að safna meðmælum og yfirfara þau. Meðmælendakerfið hefur verið notað við góða raun í bæði forseta- og alþingiskosningum en hefur nú verið aðlagað fyrir sveitarstjórnarkosningar“ segir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar. „Notendur eru mun fleiri við sveitarstjórnarkosningarnar þar sem yfirkjörstjórnir sveitarfélaga taka við framboðum en ekki landskjörstjórn líkt og í forseta- og alþingiskosningum og við teljum að með þessari stafrænu þróun sparist mjög mikil vinna hjá öllum sem að framboðsferlinu koma, ekki bara yfirkjörstjórnum heldur líka framboðunum sjálfum” segir Ástríður.
Lágmarksfjöldi meðmæla sem þarf að safna er mismunandi eftir stærð sveitarfélaga:
Í sveitarfélagi með 101–500 íbúa 10 meðmælendur
Í sveitarfélagi með 501–2.000 íbúa 20 meðmælendur
Í sveitarfélagi með 2.001–10.000 íbúa 40 meðmælendur
Í sveitarfélagi með 10.001–50.000 íbúa 80 meðmælendur
Í sveitarfélagi með 50.001 og fleiri íbúa 160 meðmælendur.
Hámarksfjöldi meðmæla er tvöföld lágmarkstala meðmæla.
Fyrir framboð - Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is
Fyrir kjósendur - Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is