Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar
Hér geta stjórnmálasamtök sem ætla að skila inn framboðum til sveitarstjórna stofnað rafræna meðmælasöfnun með framboðinu sínu í sveitarfélaginu.
Stofnandi meðmælasöfnunarinnar þarf að eiga lögheimili í sveitarfélaginu. Athugið að nafn stofnanda framboðsins og fæðingardagur mun birtast með meðmælasöfnuninni á Ísland.is.
Stofnandi slær sjálfur inn heiti framboðs og mikilvægt að yfirfara að það sé örugglega rétt ritað.
Þegar söfnun hefur verið stofnuð getur stofnandi valið umsjónaraðila sem hafa aðgang að söfnuninni. Umsjónaraðili getur t.d. verið starfsmaður eða sjálfboðaliði hjá framboði. Umsjónaraðili getur séð framgang söfnunar og getur slegið inn kennitölur meðmælenda af blaði ef þeim hefur verið safnað á þann hátt.
Aðeins er hægt að stofna rafræna meðmælasöfnun í þeim sveitarfélögum sem ákveðið hafa að nýta sér kerfið.
Þegar meðmælasöfnun hefur verið stofnuð geta einstaklingar með kosningarrétt í sveitarfélaginu skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og mælt með framboðinu.
Þegar meðmælasöfnun hefur verið stofnuð verður til beinn hlekkur í kerfinu sem hægt er að afrita og deila og auðvelda þannig fólki að mæla með tilteknum stjórnmálasamtökum.
Þegar stjórnmálasamtök skila inn tilkynningu um framboð til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins skal þess getið að meðmælum hafi verið safnað rafrænt. Hægt verður að nálgast skýrslu um stöðu söfnunar í meðmælakerfinu.
Óheimilt er að afrita, miðla eða nýta upplýsingar um meðmælendur í nokkrum öðrum tilgangi en að safna þeim til þess að skila inn framboði.
Lágmarksfjöldi meðmæla sem þarf að safna er mismunandi eftir stærð sveitarfélaga:
Í sveitarfélagi með 101–500 íbúa 10 meðmælendur
Í sveitarfélagi með 501–2.000 íbúa 20 meðmælendur
Í sveitarfélagi með 2.001–10.000 íbúa 40 meðmælendur
Í sveitarfélagi með 10.001–50.000 íbúa 80 meðmælendur
Í sveitarfélagi með 50.001 og fleiri íbúa 160 meðmælendur.
Hámarksfjöldi meðmæla er tvöföld lágmarkstala meðmæla.
Landskjörstjórn og yfirkjörstjórn sveitarfélagsins bera ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem unnið er með í þeim tilgangi að auðkenna frambjóðendur og meðmælendur. Hér má nálgast persónuverndarstefnu landskjörstjórnar.
Þjónustuaðili
Landskjörstjórn