Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Nordplus

Nordplus, kennsla og miðlun norrænna tungumála

Aðaláhersla tungumálahluta Nordplus er á verkefni sem vinna með að auka norrænan málskilning. Dæmi um það getur verið að þróa námsefni, tölvuleiki eða öpp, rannsóknir, fræðsla, ráðstefnur o.fl.

Einnig er hægt að sækja um styrk til að stofna samstarfsnet á sviði norrænna tungumála.

Lágmarksþátttaka er tvö þátttökulönd og athugið að umsóknum skal skilað á dönsku, sænsku, norsku eða ensku.

Öll sem starfa að kennslu og miðlun norrænna tungumála og norrænna minnihlutatungumála á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum geta sótt um styrkina.

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsheimsóknir í október og febrúar ár hvert.

Lesa meira um Nordplus, kennsla og miðlun norrænna tungumála

Upplýsingar um umsóknafrest í Nordplus, kennslu og miðlun norrænna tungumála á Styrkjatorgi

Opna umsóknakerfi

Nordplus

Hafðu samband

Símanúmer Rannís: +354 515 5800

nordplus@rannis.is

Vefur áætl­un­ar­innar

nordplusonline.org

Hlut­verk Rannís

Rannís fer með umsýslu Nordplus: Menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar á Íslandi