Hafskipulag
Strandsvæðisskipulag á Vestfjörðum
Staðfest skipulag
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða var staðfest af ráðherra í mars 2023 og tók gildi við birtingu í stjórnartíðindum.
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða í vefsjá
Á stafrænum skipulagsuppdrætti sem nálgast má í vefsjá, er að finna þau ákvæði sem gilda um reiti strandsvæðisskipulagsins og lýsingu á aðstæðum innan hvers þeirra. Túlkun á legu og afmörkun reita miðast við hvað greina má við lestur á útprentuðum skipulagsuppdrætti í mælikvarðanum 1:100.000.
Skipulagsstofnun hefur gefið út gagnalýsingu sem lýsir tilhögun gagna og innihaldi stafræns strandsvæðisskipulags.
Gögn stafræns strandsvæðisskipulags eru öllum opin og er hægt að nálgast gögnin í gegnum lýsigagnagátt LMÍ
Skipulagssvæði strandsvæðisskipulags Vestfjarða nær yfir firði og flóa frá Bjargtöngum í suðri og að Straumnesi í norðri.
Mörk skipulagssvæðisins til lands eru við netlög, 115 m út frá stórstraumsfjöruborði, en staðarmörk sveitarfélaga miðast við netlög. Til hafs nær skipulagssvæðið að viðmiðunarlínu sem skilgreind er í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og fylgir í aðalatriðum grunnlínu landhelgi.
Að skipulagssvæðinu liggja sveitarfélögin Vesturbyggð, Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður, Súðavíkurhreppur og Strandabyggð.
Hér fyrir neðan má finna nánari upplýsingar um ferlið að baki skipulagsgerðinni og nálgast þau gögn sem urðu til við vinnuna.


Skipulagsferlið
Svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum var svo skipað í desember 2022:
Magnús Jóhannesson, formaður, skipaður án tilnefningar. Varafulltrúi: Eggert Ólafsson.
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, Lilja Magnúsdóttir og Þorgeir Pálsson, tilnefnd af aðliggjandi sveitarfélögum. Varafulltrúar: Samúel Kristjánsson, Jón Árnason og Hafdís Sturlaugsdóttir.
Freydís Vigfúsdóttir, fulltrúi matvælaráðuneytis. Varafulltrúi: Hjalti Jón Guðmundsson.
Ásta Þorleifsdóttir, fulltrúi innviðaráðuneytis. Varafulltrúi: Friðfinnur Skaftason.
Erla Sigríður Gestsdóttir, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Varafulltrúi: Hreinn Hrafnkelsson.
Aðalsteinn Óskarsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Varafulltrúi: Bryndís Gunnlaugsdóttir.
Á vinnslutíma skipulagsins urðu breytingar á skipan svæðisráðsins. Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði fyrst svæðisráð í janúar 2019. Í lýsingu fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum má finna nánari upplýsingar um upphaflega skipan svæðisráðs.
Hægt er að skoða fundargerðir svæðisráðs um gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum.
Skipulagsstofnun var svæðisráði innan handar og annaðist gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum í umboði þess. Vinnu við gerð strandsvæðisskipulags var skipt upp í áfanga sem lýst er hér að neðan og sjá má nánari útfærslu á í lýsingu fyrir gerð strandsvæðisskipulags Vestfjarða.


Strandsvæðisskipulag Vestfjarða var unnið í virku samráði við aðliggjandi sveitarfélög, opinberar stofnanir og félagasamtök. Víðtækt samráð var viðhaft, jafnt við íbúa, sveitastjórnir, hafnarstjórnir og hagsmunaaðila sem og sérstakan samráðshóp. Almenningi og öðrum hagsmunaaðilum gafst jafnframt tækifæri til að koma að mótun skipulagsins á mismunandi stigum.
Þá voru ýmsar stofnanir ráðgefandi í skipulagsferlinu, en þar má nefna Hafrannsóknarstofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúrustofa Vestfjarða, Samgöngustofa, Vegagerðin og Umhverfisstofnun.
Samráðshópur, skipaður af ráðherra skipulagsmála, var svæðisráðum til ráðgjafar og samráðs við gerð strandsvæðisskipulagsins. Í hópnum voru fulltrúar frá umhverfisverndarsamtökum á landsvísu og af svæðinu, fulltrúar tilnefndir af ferðamálasamtökum, Samtökum atvinnulífsins og útivistarsamtökum. Svæðisráðum var heimilt að tilnefna allt að þrjá fulltrúa til viðbótar. Í hópnum áttu sæti:
Ísabella Ósk Másdóttir, tilnefnd af umhverfisverndarsamtökum
Jón Páll Hreinsson, tilnefndur af svæðisráði
Kristján G. Jóakimsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
Nanný Arna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Ferðamálasamtökum Vestfjarða
Birkir Þór Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum útivistarfélaga
Inga Fanney Sigurðardóttir, tilnefnd af umhverfisverndarsamtökum
Sjá nánar:
Skipulagstillaga til staðfestingar, desember 2022
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða 2022: Tillaga svæðisráðs til staðfestingar (pdf)
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða 2022: Uppdráttur til staðfestingar (pdf)
Umhverfismatsskýrsla: Umhvefismat strandsvæðisskipulags Vestfjarða (pdf)
Skipulagstillaga í auglýsingu, júní 2022
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða 2022: Tillaga svæðisráðs til kynninga (pdf)
Umhverfismatsskýrsla: Umhverfismat tillögu svæðisráðs að strandsvæðisskipulagi Vestfjarða (pdf)
Athugasemdir við tillögu að strandsvæðisskipulagi á Vestfjörðum (pdf)
Viðbrögð svæðisráðs við framkomnum athugasemdum við tillögu að strandsvæðisskipulagi á Vestfjörðum (pdf)
Samráð og greining á forsendum
Samfélag, nýting, náttúra: Greining á forsendum fyrri gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum (pdf)
Afrakstur samráðs: Samantekt samráðsvinnu fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum (pdf)
Lýsing
Fundargerðir svæðisráðs um strandsvæðisskipulag á Vestfjörðum:
1. fundur svæðisráða, 1. apríl 2019 (sameiginlegur fundur svæðisráða fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum og Austfjöðum).
23. fundur svæðisráðs, 26. nóvember 2024 sameiginlegur fundur svæðisráða fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum og Austfjöðum).