Alþingiskosningar 2024
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar.
Kosning á Íslandi
Kjósendur á Íslandi geta kosið hjá sýslumönnum og í sumum sveitarfélögum.
Kosning erlendis
Kjósendur þurfa að hafa samband við sendiráð eða ræðismann í viðkomandi landi til að vita hvar og hvenær er hægt að kjósa. Sýna þarf skilríki, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf, þegar kosið er. Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
Hér má finna lista af íslenskum sendiráðum og ræðismönnum.
Ef kjósandi er í vafa um hvar og hvernig eigi að kjósa erlendis er best að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í gegnum hjalp@utn.is eða í síma +354 5459900.
Kjósandi gerir grein fyrir sér með skilríkjum eða á annan fullnægjandi hátt á kjörstað og fær afhent:
kjörseðil
umslag utan um kjörseðilinn
fylgibréf með kjörseðlinum
annað umslag fyrir póstsendingu
Kjörseðill við kosningu utan kjörfundar er auður, á honum eru hvorki nöfn framboða né frambjóðenda. Kjósandi skrifar eða stimplar listabókstaf þess framboðs sem hann vill kjósa á seðilinn.
Fylgibréfið með kjörseðlinum, þar sem fram koma upplýsingar um kjósandann og hvert atkvæðið á að berast, þarf að vera undirritað af kjósanda og kjörstjóra.
Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæðinu sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Fram að kjördegi er kjörstjóra skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst.
Atkvæðabréfið skal senda til sveitarfélagsins þar sem kjósandi er á kjörskrá.
Kjósandi sem greiðir atkvæði hjá sýslumanni í umdæmi þar sem hann er á kjörskrá getur sett bréfið í atkvæðakassa þar.
Við sérstakar aðstæður getur verið heimilt að kjósa inni á stofnunum, líkt og t.d.:
sjúkrahúsum
dvalarheimilum aldraðra
stofnunum fyrir fatlað fólk
fangelsum
Sýslumaður auglýsir hvar og hvenær hægt er að kjósa á viðeigandi stöðum þegar nær dregur.
Hér er hægt að skoða leiðbeiningar varðandi framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsi, dvalarheimilum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum.
Ef kjósandi getur ekki kosið á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar er heimilt að kjósa í heimahúsi.
Sækja þarf skriflega um að fá að greiða atkvæði í heimahúsi til sýslumanns fyrir klukkan 10:00 tveimur dögum fyrir kjördag. Lögráða einstaklingur þarf að staðfesta hagi umsækjanda, þ.e. að viðkomandi geti ekki sótt kjörfund vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar. Hægt er að kjósa í fyrsta lagi þremur vikum fyrir kjördag. Ósk um að kjósa í heimahúsi þarf að berast til kjörstjóra í síðasta lagi fyrir klukkan 10:00 14. maí 2026.
Netföng embætta sýslumanna:
Höfuðborgarsvæðið - smh@syslumenn.is
Vesturland - vesturland@syslumenn.is
Vestfirðir - vestfirdir@syslumenn.is
Norðurland vestra - nordurlandvestra@syslumenn.is
Norðurland eystra - nordurlandeystra@syslumenn.is
Austurland - austurland@syslumenn.is
Suðurland - sudurland@syslumenn.is
Vestmannaeyjar - vestmannaeyjar@syslumenn.is
Suðurnes - sudurnes@syslumenn.is
Kjósendur þurfa að koma utankjörfundaratkvæðinu sínu sjálfir til sveitarfélagsins þar sem þeir eiga lögheimili, t.d. með pósti.
Hér er listi yfir heimilisföng sveitarfélaga:
Sveitarfélag | Heimilisfang | Póstnúmer og staður |
|---|---|---|
Akraneskaupstaður | Dalbraut 4 | 300 Akranesi |
Akureyrarbær | Geislagötu 9 | 600 Akureyri |
Árneshreppur | Norðurfjörður | 524 Norðurfirði |
Ásahreppur | Laugalandi | 851 Hellu |
Bláskógabyggð | Félagsheimilinu Aratungu | 806 Selfossi |
Bolungarvíkurkaupstaður | Aðalstræti 10-12 | 415 Bolungarvík |
Borgarbyggð/Skorradalur | Digranesgata 2 | 310 Borgarnesi |
Dalabyggð | Miðbraut 11 | 370 Búðardal |
Dalvíkurbyggð | Ráðhúsi Dalvíkur | 620 Dalvík |
Eyja- og Miklaholtshreppur | Hjarðarfelli | 342 Stykkishólmi |
Eyjafjarðarsveit | Skólatröð 9 | 605 Akureyri |
Fjallabyggð | Gránugötu 24 | 580 Siglufirði |
Fjarðabyggð | Hafnargötu 2 | 730 Fjarðabyggð |
Fljótsdalshreppur | Végarði | 701 Egilsstöðum |
Flóahreppur | Þingborg | 803 Selfossi |
Garðabær | Garðatorgi 7 | 210 Garðabæ |
Grindavíkurbær | Víkurbraut 62 | 240 Grindavík |
Grímsnes- og Grafningshreppur | Stjórnsýsluhúsinu Borg | 805 Selfossi |
Grundarfjarðarbær | Borgarbraut 16 | 350 Grundarfirði |
Grýtubakkahreppur | Túngötu 3 | 610 Grenivík |
Hafnarfjarðarkaupstaður | Strandgötu 6-8 | 220 Hafnarfirði |
Hrunamannahreppur | Félagsheimili, Hrunamannavegi 5 | 845 Flúðum |
Húnabyggð | Húnabyggð 5 | 540 Blönduósi |
Húnaþing vestra | Hvammstangabraut 5 | 530 Hvammstanga |
Hvalfjarðarsveit | Innrimel 3 | 301 Akranesi |
Hveragerðisbær | Breiðamörk 20 | 810 Hveragerði |
Hörgársveit | Þelamerkurskóla | 604 Akureyri |
Ísafjarðarbær | Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1 | 400 Ísafirði |
Kaldrananeshreppur | Holtagötu | 520 Drangsnesi |
Kjósarhreppur | Ásgarður Kjós | 276 Mosfellsbæ |
Kópavogsbær | Digranesvegur 1 | 200 Kópavogi |
Langanesbyggð | Langanesvegur 2 | 680 Þórshöfn |
Mosfellsbær | Þverholti 2 | 270 Mosfellsbæ |
Múlaþing | Lyngási 12 | 700 Egilsstöðum |
Mýrdalshreppur | Austurvegi 17 | 870 Vík |
Norðurþing | Ketilsbraut 7-9 | 640 Húsavík |
Rangárþing eystra | Austurvegur 4 | 860 Hvolsvelli |
Rangárþing ytra | Suðurlandsvegi 1-3 | 850 Hellu |
Reykhólahreppur | Maríutröð 5a | 380 Reykhólahreppi |
Reykjanesbær | Grænásbraut 910 | 262 Reykjanesbæ |
Reykjavíkurborg | Ráðhúsi Reykjavíkur | 101 Reykavík |
Seltjarnarnesbær | Austurströnd 5 | 170 Seltjarnarnesi |
Skaftárhreppur | Klausturvegi 4 | 880 Kirkjubæjarklaustri |
Skagafjörður | Ráðhúsinu-Skagfirðingabraut 21 | 550 Sauðárkróki |
Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Árnesi | 804 Selfossi |
Snæfellsbær | Klettsbúð 4 | 360 Hellissandi |
Strandabyggð | Hafnarbraut 25 | 510 Hólmavík |
Suðurnesjabær | Sunnubraut 4 | 250 Suðurnesjabæ |
Súðavíkurhreppur | Grundarstræti 1 | 420 Súðavík |
Svalbarðsstrandarhreppur | Ráðhúsinu Svalbarðseyri | 606 Akureyri |
Sveitarfélagið Árborg | Austurvegi 2 | 800 Selfossi |
Sveitarfélagið Hornafjörður | Hafnarbraut 27 | 780 Höfn |
Sveitarfélagið Skagaströnd | Túnbraut 1-3 | 545 Skagaströnd |
Sveitarfélagið Stykkishólmur | Ráðhúsinu, Hafnargötu 3 | 340 Stykkishólmi |
Sveitarfélagið Vogar | Iðndal 2 | 190 Vogum |
Sveitarfélagið Ölfus | Hafnarbergi 1 | 815 Þorlákshöfn |
Tjörneshreppur | Ketilsstaðir | 641 Húsavík |
Vestmannaeyjabær | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum |
Vesturbyggð | Aðalstræti 75 | 450 Patreksfirði |
Vopnafjarðarhreppur | Hamrahlíð 15 | 690 Vopnafirði |
Þingeyjarsveit | Kjarni | 650 Laugar |