Tilkynning um bíl undir rekstrarleyfi til farþega- og farmflutninga
Aðilar sem eru með rekstrarleyfi til farþega- og farmflutninga samkvæmt lögum og reglum um farþega- og farmflutninga á landi þurfa að tilkynna Samgöngustofu um bíla sem tilheyra rekstri leyfishafa. Þetta á við þegar verið að bæta við eða fækka bílum sem leyfishafi notar.
Hópbílar og sérútbúnir bílar þurfa að hafa gilda leyfisskoðun
Bílar með ferðaþjónustuleyfi þurfa að hafa gilda leyfisskoðun og vera skráðir í notkunarflokkinn Ökutæki með ferðaþjónustuleyfi
Hægt er að sjá frekar um leyfisskoðanir og kröfur til ökutækja í atvinnuakstri í skráningareglum Samgöngustofu.
Athugið að það er á ábyrgð rekstrarleyfishafa að viðeigandi trygging á bíl eða bílum sé til staðar og í gildi hverju sinni.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa