30. september 2026
Vinnumaður / Farm Worker - Tungutugga ehf.
Starfsmaður óskast á nautgripabú
Við leitum að ábyrgum, algóðum, reglusömum, reyklausum, hraustum og duglegum karlmanni til starfa á nautgripabúi.
Rétt viðhorf, vinnusemi og ábyrgð skipta okkur miklu máli.
Starfið felur m.a. í sér:
Dagleg störf við nautgripi og fóðrun
Húsverk og þrif
Véla- og útiverk eftir árstíma
Heyskap og önnur bústörf
Almenn umhirða og viðhald á búi og tækjum
Við leitum að einstaklingi sem:
Er sjálfstæður í vinnu og tekur ábyrgð
Mætir stundvíslega og klárar það sem þarf að klára
Er vinnusamur og þolir líkamlega vinnu
Hefur áhuga á búskap og dýrum
Getur unnið einn án þess að þurfa stöðuga eftirfylgni
Er tilbúinn að taka þátt í helgar- og árstíðabundinni vinnu þegar þess þarf
Hefur bílpróf
Hefur dráttarvélarpróf
Reynsla af nautgripum, vélum og landbúnaði er skilyrði.
Hentar ekki öllum
Þetta er ekki 9–5 starf og hentar illa þeim sem vilja eingöngu vinna ákveðinn fjölda klukkustunda og fara svo heim.
Búskapur krefst þess að maður sé tilbúinn að bregðast við þegar eitthvað kemur upp og að verkefnin séu kláruð.
Á móti kemur fjölbreytt starf, mikil útivera og tækifæri til að læra og taka þátt í öllum hliðum búrekstrarins.
Umsóknir skulu innihalda stutta lýsingu á þér, fyrri starfsreynslu og hvers vegna þú hefur áhuga á starfinu.
Sendið umsókn á tungutugga@gmail.com
Umsóknarfrestur til og með 30 september 2026.