9. október 2026
Verslunarmaður - Samkaup ehf.
Nettó Höfn í Hornafirði leitar að starfsfólki í tvö störf við áfyllingu kvöld/nætur. Um er að ræða starf þar sem vinnutími er að jafnaði frá kl. 20:00–04:00, sex daga vikunnar.
Starfið felst fyrst og fremst í áfyllingu og frágangi á vörum að kvöldi og nóttu. Stærstur hluti vinnutímans er eftir lokun verslunar en hluti vaktar getur verið á opnunartíma.
Starfið hentar vel einstaklingi sem er sjálfstæður, skipulagður og vinnur rösklega. Mikilvægt er að geta unnið eftir skipulagi vinnustaðar, forgangsraðað verkefnum og sýnt frumkvæði.
Helstu verkefni:
1. Áfylling og frágangur á vörum
2. Framstilling og tiltekt í verslun
3. Móttaka og frágangur vöru eftir þörfum
4. Aðstoð við viðskiptavini á opnunartíma
5. Önnur tilfallandi verkefni í verslun
Hæfniskröfur:
1. Sjálfstæði og ábyrgð í starfi
2. Skipulögð og vönduð vinnubrögð
3. Dugnaður og geta til að vinna rösklega
4. Frumkvæði og geta til að forgangsraða verkefnum
5. Góð enskukunnátta
Greitt eftir kjarasamningi VR
Fyrirtækið útvegar ekki húsnæði né aðstoðar við leit að húsnæði
Umsóknafrestur er til og með 08.10.2026
Vinsamlegast sækið um starfið á Mínum síðum eða með því að senda umsókn netfangið: laun@samkaup.is