13. maí 2026
Verkefnastjóri / Project Manager - GE Verktakar ehf.
Verkefnastjóri í byggingaframkvæmdum
Fyrirtækið G.E. verktakar er ört stækkandi fyrirtæki á byggingarmarkaði. Við leitum að metnaðarfullum verkstjóra til að sinna verkefnum á verkstað.
Um er að ræða þátttöku í uppbyggingu hótels sem þegar er í framkvæmd, auk sambærilegra verkefna í framhaldi.
Helstu verkefni:
• Mælingar og útsetning fyrir uppsetningu á Fermacell stoðum og plötukerfum
• Vinna eftir teikningum og verklýsingum
• Skipulagning og eftirfylgni verkefna
• Dagleg þátttaka í vinnu á verkstað
• Samhæfing verkefna og eftirlit með framvindu
• Tryggja að öll vinna uppfylli kröfur um gæði og kröfur
Hæfniskröfur:
• Reynsla af uppsetningu Fermacell kerfa og stoðakerfa er mjög æskileg
• Hæfni til að lesa teikningar og vinna sjálfstætt.
• Reynsla af verkstjórn er kostur.
• Umsækjandi þarf að vera skipulagður, ábyrgur og hafa góða samskiptahæfni.
• Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða enskukunnáttu.
• Góða þekkingu á Procore og Autocad
Menntun:
• B.Sc. gráða í byggingarverkfræði
Um er að ræða fullt starf á verkstað hverju sinni. Vinnutími er frá 7:30-16:00 alla virka daga.
Launakjör eru samkvæmt Verkfræðinga félag Íslands.
Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Elí og info@geverktakar.is
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260414-06" in the field for employer.
Umsóknarfrestur er til og með 13 maí 2026.